Fotbolti.net
15.11.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

Rice um White: Erfitt þegar stuðningsmenn baula

Rice um White: Erfitt þegar stuðningsmenn baula
Canon

Mynd: EPA

Ben White er kominn aftur í enska landsliðshópinn eftir að hafa neitað að spila undir stjórn Gareth Southgate, forvera Thomas Tuchel.
White um fjarveruna frá landsliðinu: Fólk veit ekki alla söguna
TENGT EFNI

White um fjarveruna frá landsliðinu: Fólk veit ekki alla söguna

White var valinn í landsliðshópinn sem fór á HM 2022 en dró sig úr hópnum af persónulegum ástæðum.

Áhorfendur bauluðu á White þegar hann kom inn af bekknum í sigri gegn Króatíu fyrir helgi.

„Það eru liðin fimm ár síðan þetta átti sér stað og ég skil ekki hvers vegna fólk er ennþá að spá í þessu. Ég þekki Ben og hvernig karakter hann er, hann er klárlega löngu kominn yfir allt þetta mál," segir Declan Rice, samherji hans í enska landsliðinu og hjá Arsenal.

„Hann leggur alltaf 100% í sölurnar þegar hann klæðist ensku landsliðstreyjunni, það skiptir engu máli fyrir hann hvort áhorfendur séu að baula. Það er ekki auðvelt þegar þínir eigin stuðningsmenn eru að baula á þig á Wembley, en þetta hafði ekki áhrif á Ben og það sýnir hversu sterkur hann er."

England spilar úrslitaleik við Spán í kvöld og getur tekið toppsæti riðilsins í Þjóðadeildinni með sigri. Rice verður líklegast á sínum stað í byrjunarliðinu.
Rice um White: Erfitt þegar stuðningsmenn baula
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.