10.11.26 - 13:30
Kári Snorrason
White um fjarveruna frá landsliðinu: Fólk veit ekki alla söguna

Skoraði gegn Úrúgvæ í mars í fyrsta landsleik sínum í tæp fjögur ár.

Mynd: EPA

Skoraði gegn Úrúgvæ í mars í fyrsta landsleik sínum í tæp fjögur ár.

Mynd: EPA
Ben White, varnarmaður Arsenal, segir að fólk þekki ekki alla söguna á bak við ákvörðun hans um að gefa ekki kost á sér í enska landsliðið.
White yfirgaf herbúðir Englands á HM í Katar árið 2022 af persónulegum ástæðum. Hann gaf ekki kost á sér á meðan Gareth Southgate stýrði liðinu en sneri aftur undir stjórn Thomas Tuchel í mars.
White yfirgaf herbúðir Englands á HM í Katar árið 2022 af persónulegum ástæðum. Hann gaf ekki kost á sér á meðan Gareth Southgate stýrði liðinu en sneri aftur undir stjórn Thomas Tuchel í mars.

TENGT EFNI
Ben White snýr aftur í landsliðið eftir þriggja ára fjarveru
„Fólk þekkir ekki alla söguna því ég hef aldrei tjáð mig um þetta. Ég ætla ekki að henda neinum fyrir rútuna eða segja frá því sem gerðist,“ sagði White í samtali við BBC og sagði hann jafnframt að hann myndi taka sömu ákvörðun í dag.
White hefur leikið sex landsleiki og er í hópi Englands fyrir leikina gegn Króatíu og Spáni í Þjóðadeildinni.
White hefur leikið sex landsleiki og er í hópi Englands fyrir leikina gegn Króatíu og Spáni í Þjóðadeildinni.
