Fotbolti.net
15.11.26 - 15:33
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Ronaldinho í byrjunarliðinu hjá Ravenna

Ronaldinho í byrjunarliðinu hjá Ravenna
Canon

Mynd: Ravenna

Það styttist óðum í endurkomu Ronaldinho á fótboltavöllinn, en Ravenna hefur nú tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Forli í ítölsku C-deildinni í dag. Leikurinn hefst klukkan 16:30.
Endurkoma Ronaldinho í opinni dagskrá
TENGT EFNI

Endurkoma Ronaldinho í opinni dagskrá

Ronaldinho, sem vann Ballon d'Or árið 2005, er talinn einn besti fótboltamaður allra tíma.

Hann lagði skóna á hilluna árið 2015, en í sumar, þegar hann eignaðist hlut í Ravenna, tilkynnti hann að hann ætlaði að reima á sig takkaskóna á ný.

Nú er endanlega staðfest að Ronaldinho snýr aftur á völlinn í þessum eina leik gegn Forli, en hann er í byrjunarliðinu.

Byrjunarlið Ravenna: Venturi; Donati, Zaro, Esposito, Bani; Lonardi, Vinicius, Duca; Da Pozzo, Rabbi, Ronaldinho

Hann klæðist að sjálfsögðu treyju númer 10 og verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni og opinni útsendingu á Kick, OneFootball og Sky Sports.

Útsending Sky Sports á Youtube

Smelltu hér til að horfa á útsendingu OneFootball

Smelltu hér til að horfa á útsendingu Kick
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.