15.11.26 - 21:46
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin: Tíu Englendingar höfðu betur á Spáni

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fjórum leikjum kvöldsins sem fóru fram í A-deild Þjóðadeildarinnar var að ljúka rétt í þessu og litu 16 mörk dagsins ljós.

TENGT EFNI
Tvö víti og rautt spjald á Spáni
Mesta skemmtunin var í afar kaflaskiptum leik á Spáni, þar sem heims- og Evrópumeistararnir tóku á móti Englandi.
Englendingar voru talsvert sterkari aðilinn og komust í þriggja marka forystu í Madríd, en leikurinn breyttist eftir að Elliot Anderson fékk að líta beint rautt spjald þegar Clément Turpin dómari mat það sem svo að hann hafði brotið af sér sem aftasti varnarmaður án þess að reyna við boltann. Anderson snerti Lamine Yamal lítillega á öxlina en leikmennirnir voru á mikilli ferð og féll ungstirnið til jarðar.
Mikel Oyarzabal skoraði af vítapunktinum og sóttu ellefu Spánverjar stíft gegn gestunum sem voru manni færri. Nico Williams kom inn af bekknum og var fljótur að skora eftir góða sendingu frá Yamal og bjargaði James Trafford sínum mönnum með tveimur góðum vörslum skömmu síðar.
Spánverjar sóttu stíft en Englendingar vörðust vel. Trafford varði einu sinni meistaralega í uppbótartíma og dugði það til að tryggja tíu Englendingum frábæran sigur. Spánn hafði farið í gegnum 43 keppnisleiki í röð án þess að tapa fyrir þennan leik.
Þetta þýðir að England vinnur riðilinn en bæði stórveldin tryggðu sér þátttöku í úrslitakeppninni með sigrum í síðustu umferð sem var leikin fyrir helgi.
Á sama tíma rúllaði Belgía yfir tilraunakennt lið Ítalíu eftir að Francesco Pio Esposito náði forystunni fyrir gestina snemma leiks.
Belgar tóku yfir stjórn á leiknum og sköpuðu mikið af góðum færum sem enduðu með mörkum. Úrvalsdeildarvarnarmaðurinn Maxim De Cuyper gerði jöfnunarmark Belga áður en miðvörðurinn Nathan Ngoy kom þeim yfir og svo skoraði Jérémy Doku eftir magnað einstaklingsframtak með hálft ítalska landsliðið í kringum sig.
Staðan var 3-1 í leikhlé og bætti Diego Moreira fjórða markinu við í síðari hálfleik, eftir undirbúning frá Kevin De Bruyne. Ítalir áttu engin svör við frábærum sóknarleik Belga, svo lokatölur urðu 4-1. Pio Esposito klúðraði vítaspyrnu undir lokin.
Belgar enda því í öðru sæti riðilsins og tryggja sér sæti í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar, á meðan Ítalir sitja eftir í þriðja sæti og þurfa að fara í umspil um að halda sæti sínu í A-deildinni.
Frakkland vann riðilinn með sigri gegn Tyrklandi. Frakkar klúðruðu mikið af góðum færum en náðu forystunni þökk sé sjálfsmarki í upphafi síðari hálfleiks, áður en Eli Junior Kroupi kom inn af bekknum til að tvöfalda forystuna.
Mark frá Arda Güler var ekki dæmt gilt vegna rangstöðu og minnkuðu Tyrkir muninn á lokamínútunum, þegar Abdulkerim Bardakci skoraði eftir sendingu frá Güler. Nær komust Tyrkir ekki og urðu lokatölur 2-1. Tyrkland fellur því niður í B-deildina.
Króatía lagði að lokum Tékkland að velli og því fellur Tékkland niður í B-deildina á meðan Króatía fer í umspil.
Spánn 2 - 3 England
0-1 Harry Kane ('45 , víti)
0-2 Ezri Konsa ('53 )
0-3 Ben White ('57 )
1-3 Mikel Oyarzabal ('65 , víti)
2-3 Nico Williams ('75 )
Rautt spjald: Elliot Anderson, England ('63)
Belgía 4 - 1 Ítalía
0-1 Pio Esposito ('11 )
1-1 Maxim De Cuyper ('15 )
2-1 Nathan Ngoy ('22 )
3-1 Jeremy Doku ('26 )
4-1 Diego Moreira ('80 )
4-1 Pio Esposito ('90 , Misnotað víti)
Frakkland 2 - 1 Tyrkland
0-1 Emirhan Topcu ('49 , sjálfsmark)
1-1 Eli Kroupi ('80 )
1-2 Abdulkerim Bardakci ('90 )
Króatía 2 - 1 Tékkland
1-0 Ivan Perisic ('2 )
1-1 Adam Hlozek ('84 )
2-1 Lovro Majer ('87)