Fotbolti.net
15.11.26 - 23:26
Ívan Guðjón Baldursson

Þrír Spánverjar fóru meiddir af velli

Pubill kom inn af bekknum og skoraði gegn Tékklandi.

Pubill kom inn af bekknum og skoraði gegn Tékklandi.

Canon

Mynd: EPA

Heims- og Evrópumeistarar Spánverja höfðu farið í gegnum 43 landsleiki án taps þegar þeir tóku á móti Englandi í Þjóðadeildinni í kvöld.
Þjóðadeildin: Tíu Englendingar höfðu betur á Spáni
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Tíu Englendingar höfðu betur á Spáni

Englendingar völtuðu yfir Spán á fyrsta klukkutíma leiksins og leiddu með þremur mörkum á Metropolitano. Munurinn hefði getað verið stærri, en leikurinn breyttist þegar Elliot Anderson fékk dæmda vítaspyrnu á sig og rautt spjald á 63. mínútu.

Spánn minnkaði muninn niður í eitt mark en Englendingar héldu út og skópu að lokum langþráðan sigur gegn ógnarsterkum andstæðingum sem hafa reynst einstaklega erfiðir viðureignar á undanförnum árum.

Spánverjar, sem höfðu unnið ellefu leiki í röð fyrir tapið í kvöld, misstu þrjá leikmenn í meiðsli í leiknum. Næsta landsleikjahlé er þó ekki fyrr en í mars svo meiðslin ættu ekki að hafa áhrif á landsliðið.

Hægri bakverðinum Marc Pubill, sem leikur með Atlético Madrid, var skipt af velli á 20. mínútu og leysti Pedro Porro hann af hólmi.

Pau Cubarsí, miðvörður Barcelona, þurfti svo að fara af velli í leikhlé vegna meiðsla áður en grímuklæddur Martín Zubimendi, miðjumaður Arsenal, þurfti skiptingu í seinni hálfleik.

Rodri, Dani Olmo, Álex Grimaldo, Gavi, Eric García og Borja Iglesias voru meðal meiddra landsliðsmanna Spánverja fyrir stórleik kvöldsins.
Þrír Spánverjar fóru meiddir af velli
Canon

Mynd: EPA

Þrír Spánverjar fóru meiddir af velli
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.