15.11.26 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Wenger ætlar ekki upp á móti Infantino

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Arséne Wenger, fyrrum stjóri Arsenal sem starfar í dag sem yfirmaður þróunarmála hjá FIFA, ætlar ekki upp á móti Gianni Infantino í framboði fyrir forsetastól Alþjóðafótboltasambandsins.

TENGT EFNI
Wenger íhugar að fara í framboð gegn Infantino
Fótboltaheimurinn virðist vera kominn með nóg af starfsháttum Infantino en það sárvantar einstakling sem getur sett sig upp á móti honum og átt raunverulega möguleika til sigurs.
Wenger hugleiddi að bjóða sig fram, en heimildarmenn BBC segja að Frakkinn hafi að lokum ákveðið að sitja hjá. Wenger er 77 ára gamall og ekki líklegt að hann myndi njóta nægilegs stuðnings til að skáka Infantino.
Evrópska fótboltasambandið, UEFA, vill koma Infantino úr forsetastólnum en Svisslendingurinn nýtur enn mikils stuðnings víða um heim. Hann nýtur mjög mikils stuðnings frá fótboltasamböndum í Afríku, Asíu, Suður-Ameríku og Eyjaálfu, en Norður-Ameríka er mjög tvískipt í stuðningi við hann.
UEFA er því í leit að verðugum frambjóðanda til að mæta Infantino í kosningum, einstaklingi sem gæti notið stuðnings frá fótboltasamböndum um allan heim.
Menn hafa tíma til miðvikudags til að tilkynna framboð fyrir forsetakosningarnar, sem munu fara fram í Marokkó 18. mars. Hver frambjóðandi þarf að hafa minnst fimm aðildarsambönd FIFA á bak við sig til að fá framboðið samþykkt.
Eins og staðan er í dag eru Ramón Vega, fyrrum leikmaður Tottenham og svissneska landsliðsins, og Kozo Tashima, heiðursforseti japanska fótboltasambandsins, búnir að tilkynna vilja sinn til að fara í framboð gegn Infantino.