Fotbolti.net
16.09.26 - 13:10
Kári Snorrason

Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn

Ísak Snær hefur skorað þrjú mörk í Superligaen á tímabilinu.

Ísak Snær hefur skorað þrjú mörk í Superligaen á tímabilinu.

Canon

Mynd: Lyngby

Eimskip
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt landsliðshópinn fyrir komandi verkefni í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli laugardaginn 26. september. Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Verkefninu lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.
Ísland þarf toppsætið til að vera öruggt með að enda ekki í neðstu deild
TENGT EFNI

Ísland þarf toppsætið til að vera öruggt með að enda ekki í neðstu deild

Rúnar Alex Rúnarsson kemur inn í hópinn en hann hefur ekki verið valinn í síðustu hópa. Anton Ari Einarsson, leikmaður Breiðabliks, víkur úr hópnum.

Ísak Snær Þorvaldsson er valinn en hann hefur skorað þrjú mörk og lagt upp tvö til viðbótar í dönsku Superligaen á tímabilinu. Ísak var valinn í hópinn gegn Japan í vor en ekki gegn Argentínu.

Viktor Bjarki Daðason og Daníel Tristan Guðjohnsen eru báðir valdir í U21 liðið.

Kristian Hlynsson var ekki valinn en hann hefur verið að glíma við meiðsli, Hjörtur Hermannsson er sömuleiðis ekki valinn vegna meiðsla. Sverrir Ingi Ingason sleit krossband fyrr í sumar og er hann því ekki í hópnum.

Andri Lucas Guðjohnsen snýr aftur í hópinn og þá eru þeir Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson sömuleiðis báðir í leikmannahópnum sem má sjá hér að neðan.

Hópurinn í heild sinni:
Markverðir:
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 15 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 22 leikir
Rúnar Alex Rúnarsson - FC Köbenhavn - 27 leikir

Útileikmenn:
Guðlaugur Victor Pálsson - AC Horsens - 58 leikir, 5 mörk
Bjarki Steinn Bjarkason - FC Südtirol - 7 leikir
Daníel Leó Grétarsson - AGF - 31 leikur
Aron Einar Gunnarsson - Qatar SC - 110 leikir, 5 mörk
Hörður Björgvin Magnússon - Atromitos F.C. - 54 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor A.S. - 16 leikir, 1 mark
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 31 leikur, 2 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 37 leikir, 1 mark
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 31 leikur, 3 mörk
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa A.S. - 14 leikir
Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 44 leikir, 6 mörk
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R. - 86 leikir, 28 mörk
Mikael Neville Anderson - AGF - 39 leikir, 2 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha BSC - 55 leikir, 6 mörk
Arnór Sigurðsson - Kalamata FC - 36 leikir, 2 mörk
Kristall Máni Ingason - SK Brann - 9 leikir
Albert Guðmundsson - Lazio - 47 leikir, 14 mörk
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 18 leikir, 9 mörk
Ísak Snær Þorvaldsson - Lyngby Boldklub 1921 - 7 leikir, 1 mark
Andri Lucas Guðjohnsen - Blackburn Rovers F.C. - 39 leikir, 10 mörk
Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 10 leikir, 1 mark
Rúnar Alex kemur inn í hópinn.

Rúnar Alex kemur inn í hópinn.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Gylfi heldur sæti sínu.

Gylfi heldur sæti sínu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristian er að glíma við meiðsli.

Kristian er að glíma við meiðsli.

Canon

Mynd: EPA

Aron Einar er í hópnum.

Aron Einar er í hópnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.