Fotbolti.net
16.10.26 - 22:26
Sigurjón Árni Torfason

Sauð á Óla Skúla: Kýla menn kalda á fótboltavelli á ekki að sjást

Auglýsing
Það sauð á Óla eftir leik!

Það sauð á Óla eftir leik!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik tóku á móti Víkingum í 4.umferð í umspilinu í Bestu deild karla. Leiknum lauk með 2-1 sigri Víkinga í miklum hita leik. Fótbolti.net voru á staðnum og heyrðu í Óla eftir leik.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 2 Víkingur R.
"Bara vel pirraður. Það eiginlega sýður á mér ennþá í rauninni. Bara flottur fótboltaleikur þangað til að dómari leiksins ákveður að hérna taka völdin í sínar hendur og rekur Anton Loga út af fyrir einhverja 50/50 tæklingu þar sem jú, jú, einhverjir gætu alveg sagt það en svona við það einhvern veginn að hann er ekki með stjórn á bolta, það er ekki verið að ræna hann upplögðu tækifæri. Við erum með hafsenta undir þannig að ég bara skil ekki hvernig er hægt að taka þessa ákvörðun. Ég á bara mjög erfitt með að skilja það en þetta var bara góður fótboltaleikur. Mér fannst við bara vera mjög flottir, skorum fallegt mark og, og bara eins og ég segi, skemmtilegur fótboltaleikur fram að rauða spjaldinu. Og svo var þetta auðvitað bara svolítið að reyna að verja forystuna og við kannski féllum aðeins of langt aftur en hrós á strákana bara fyrir hvað þeir lögðu í þetta, en við erum auðvitað bara sárir, svekktir að hafa ekki fengið eitthvað út úr þessu."

Þetta var rosalega mikill hita leikur og Ólafur Ingi fékk að líta rauða ásamt þremur öðrum rauðum spjöldum.

„Ja, bara fyrir munnsöfnuð. Ég náttúrulega bara biðst bara afsökunar á því. Ég á ekkert að láta þetta fara í taugarnar á mér en mér fannst þetta bara svo greinilegt að ég bara eiginlega gat ekki setið á mér og sagði honum bara til syndanna og honum fannst það nóg."

Sástu hvað gerist í bæði rauða spjaldinu hjá Daníel Hafsteins og Ásgeirs Helga?

„Mér skilst að hérna, Daníel hafi brotið á Gabríel og kýlt hann í kjölfarið þegar hann Gabríel liggur. sem er náttúrulega bara grafalvarlegt ef svo er. Það er ekkert mál að menn takist á og það sé barátta og hérna menn geta verið harðir í návígum og annað en að kýla menn kalda inn á fótboltavelli er náttúrulega ekki eitthvað sem að á að sjást."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.