SKÝRSLAN: Alvöru hiti eins og við viljum!
Hvað réði úrslitum?
Blikar skora snemma og missa síðan mann af velli, og þá breytist leikmyndin, og Víkingar sóttu og herjuðu á Blika og lá jöfnunarmarkið í loftinu ,og Víkingar ná loks að jafna leikinn. Síðan kom alvöru screamer frá Sveini Margeir beint úr aukaspyrnu og varð þetta þá erfitt fyrir Blika.
Bestu leikmenn
1. Valdimar Þór
fannst Valdimar eiga mjög góða frammistöðu og gerði erfitt fyrir leikmönnum Blika. Hann lagði einnig upp fyrsta mark Víkinga á Daníel Hafsteins
2. Sveinn Margeir Hauksson
Cristiano Margeir var mjög flottur þegar hann kom inná og hann fær þetta frá mér og þá sérstaklega fyrir þetta aukaspyrnumark og hann var einnig mjög góður þegar hann kom inn hélt vel í boltann og var öflugur.
Atvikið
Ég ætla segja atvikið undir lok leiks þegar Daníel lendir í samstuði við Gabríel Snæ og svo þegar Ásgeir Helgi er í einhverjum slagsmálum, en þetta áttu sér eftirmála þegar ég varð vitni af því að Jón Guðni, aðstoðarþjálfari Breiðabliks, sagði við Daníel að menn eigi frekar að tækla menn inná vellinum, ekki kýla. Daníel þvertók fyrir að hafa kýlt Gabríel þegar hann tók hann niður. Það urðu svo einhver frekari orðaskipti og m.a. fór orðið fáviti í báðar áttir.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar geta ennþá jafnað stigametið sitt. Blikar halda 4. sætinu.
Vondur dagur
Anton Logi verður að fá þetta hvort sem þetta var rautt eða ekki ,var það niðurstaðan og það er nógu erfitt að spila gegn Víkingum 11 á móti 11, hvað þá 10 á móti 11.
Dómarinn - 4
Ívar Orri fannst mér missa tekinn á leiknum!




