Fotbolti.net
16.11.26 - 18:25
Brynjar Ingi Erluson

Aron Einar jafnaði landsleikjametið

Aron Einar jafnaði landsleikjametið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Aron Einar Gunnarsson hefur jafnað landsleikjamet íslenska landsliðsins eftir að hafa komið inn af bekknum gegn Lúxemborg.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Lúxemborg
Aron er einn besti leikmaður í sögu íslenska landsliðsins og leiddi liðið sem fyrirliði á bæði Evrópumótið og heimsmeistaramótið.

Hann var heiðraður fyrir leikinn og honum þakkað fyrir framlag sitt til landsliðsins, en Aron hefur þegar tilkynnt að þetta verði hans síðasta landsliðsverkefni.

Aron hafði spilað 112 landsleiki fyrir kvöldið og átti því möguleika á að jafna landsleikjamet Birkis Bjarnasonar, sem hefur staðið undanfarin ár.

Þegar Mikael Egill Ellertsson bætti við þriðja marki Íslands gegn Lúxemborg fékk Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, kjörið tækifæri til að gefa Aroni þá kveðjugjöf sem hann á svo sannarlega skilið.

Söguleg stund fyrir Aron og íslenska landsliðið, enda fáir sem hafa gefið jafn mikið af sér fyrir landsliðið og hann í gegnum árin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.