Fotbolti.net
16.11.26 - 16:35
Kári Snorrason

Aron og gullkynslóðin heiðruð

Tekur þátt í sínum síðasta landsleik.

Tekur þátt í sínum síðasta landsleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Aron Einar Gunnarsson mun taka þátt í sínum síðasta landsleik er Ísland tekur á móti Lúxemborg síðar í dag.

Flautað verður til leiks klukkan 17:00 en Aron verður heiðraður skömmu fyrir upphafsflaut. Þá verður mínútuþögn fyrir leik til heiðurs Guðjóns Þórðarsonar sem lést á dögunum.

Skyldi Aron koma við sögu í leiknum mun hann jafna leikjamet Birkis Bjarnasonar, sem lék 113 landsleiki.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 0 Lúxemborg
Í hálfleik verður hópurinn sem fór á EM 2016 jafnframt heiðraður. Fjórir leikmenn sem voru í hópnum í Frakklandi fyrir áratug síðan eru í núverandi landsliðshóp, þeir Aron Einar, Gylfi Þór, Hörður Björgvin og Hjörtur Hermannsson.

Búið er að opinbera byrjunarlið leiksins og er Aron Einar á varamannabekknum.
Kaldur Laugardalsvöllur.

Kaldur Laugardalsvöllur.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Íslenska liðið hitar upp.

Íslenska liðið hitar upp.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.