Fotbolti.net
16.11.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Daníel Finns vill fara frá Stjörnunni

Daníel Finns vill fara frá Stjörnunni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Finns Matthíasson hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net látið Stjörnuna vita af því að hann vilji fara frá félaginu. Í mars á þessu ári skrifaði Daníel undir samning við Stjörnuna sem gildir út næsta tímabil.

Daníel er fæddur 2001 og kom frá uppeldisfélaginu Leikni snemma tímabils 2022. Hann lék svo á láni með Leikni tímabilið 2023.
Danni Finns ósáttur og hugsar sér til hreyfings
TENGT EFNI

Danni Finns ósáttur og hugsar sér til hreyfings

Daníel, sem er fjölhæfur leikmaður sem spilaði bæði á miðju og í vörn Stjörnunnar á liðnu tímabili, var í stóru hlutverki framan af tímabili en missti sæti sitt í byrjunarliði liðsins eftir þjálfarabreytingu. Hann vildi fara frá Stjörnunni í sumarglugganum en fór ekki.

Á tímabilinu byrjaði hann 14 deildarleiki, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Alls tók hann þátt í 19 deildarleikjum og kom inn á í öllum fjórum Evrópuleikjum Stjörnunnar.

Árið 2022 lék Daníel einn leik fyrir U21 landsliðið.
Daníel Finns vill fara frá Stjörnunni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.