16.11.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Efnilegur leikmaður skoraði fyrir Aftureldingu - „Mjög bjartsýnir á að hann semji við okkur"

Nenni í úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nenni Þór Guðmundsson gæti verið á leið í Aftureldingu en hann hefur æft með félaginu að undanförnu.
Hann er fæddur 2009 og var í risastóra slúðurpakkanum, sem birtur var í síðasta mánuði, sterklega orðaður við Aftureldingu. Hann hefur verið í æfingahópum U16 og var í U17 hóp á síðasta ári.
Hann er leikmaður KFA og hefur spilað talsvert með meistaraflokki síðustu þrjú tímabil. Hann rataði fyrst í fréttirnar 2024 þegar hann skoraði í Fótbolti.net bikarnum.

TENGT EFNI
Nenni Þór eftir sigurmark: Helvíti gott
Hann skoraði fyrir Aftureldingu í æfingaleik gegn Fjölni á dögunum. Fótbolti.net ræddi við Magnús Má Einarsson sem er þjálfari Aftureldingar.
„Nenni er efnilegur leikmaður sem hefur æft með okkur undanfarnar vikur og staðið sig mjög vel. Hann hefur komið vel inn í hópinn og smellur vel inn í það sem við erum að gera. Við erum mjög bjartsýnir á að hann semji við okkur og haldi áfram að vaxa sem leikmaður í Mosfellsbænum," segir Maggi.
„Nenni er efnilegur leikmaður sem hefur æft með okkur undanfarnar vikur og staðið sig mjög vel. Hann hefur komið vel inn í hópinn og smellur vel inn í það sem við erum að gera. Við erum mjög bjartsýnir á að hann semji við okkur og haldi áfram að vaxa sem leikmaður í Mosfellsbænum," segir Maggi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson