Fotbolti.net
16.11.26 - 14:51
Elvar Geir Magnússon

Er Trafford að slá Pickford út sem aðalmarkvörður?

James Trafford og Ezri Konsa.

James Trafford og Ezri Konsa.

Canon

Mynd: EPA

Markvörðurinn James Trafford hjá Leeds greip tækifærið sem hann fékk hjá enska landsliðinu í gær með báðum höndum og átti flottan leik í 3-2 sigri gegn heimsmeisturum Spánar.

Trafford, sem er 24 ára, var að spila sinn fimmta landsleik fyrir England og steig upp með mikilvægar vörslur þegar Spánverjar reyndu að jafna í Madríd.
Þjóðadeildin: Tíu Englendingar höfðu betur á Spáni
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Tíu Englendingar höfðu betur á Spáni

Í síðustu viku sagði Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, að það væri ljóst að Jordan Pickford, markvörður Everton, væri númer eitt. En eftir leikinn á Spáni sagði Tuchel að það væri enginn aðalmarkvörður og hrósaði Trafford fyrir frábæran leik.

Luis de la Fuente, þjálfari Spánar, tók í sama streng.

„Við fengum nokkur færi til að jafna en markvörður Englands átti frábæran leik og kom í veg fyrir tvö eða þrjú mörk á síðustu 10 til 15 mínútunum," sagði De La Fuente.

Mikil umræða er á samfélagsmiðlum um hvort þetta hafi verið tímapunkturinn þar sem Trafford hafi náð að hirða stöðuna af Pickford.

„Þetta var kjörið tækifæri fyrir Trafford til að stíga inn á völlinn, gegn öflugum leikmönnum, og sýna hvað í honum býr," sagði sparkspekingurinn Roy Keane.

Pickford, sem er 32 ára, hefur leikið 94 landsleiki fyrir England. Samkvæmt tölfræði frá Opta hefur Pickford aðeins gert tvö mistök sem leitt hafa til marks á landsliðsferli sínum. Hann hefur haldið hreinu í 46 leikjum og er með 74,3% markvörsluhlutfall.
Jordan Pickford, markvörður Englands.

Jordan Pickford, markvörður Englands.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.