16.11.26 - 15:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gummi Kristjáns aðstoðar Rúnar Pál

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Kristjánsson (1989) hefur bæst við þjálfarateymi Rúnars Páls Sigmundssonar hjá Stjörnunni.
Guðmundur, sem var fyrirliði Stjörnunnar og lagði í lok tímabils skóna á hilluna, kemur inn sem aðstoðarþjálfari og einnig sem yfirstyrktarþjálfari Stjörnunnar.
Áður hafði Stjarnan greint frá því að Veigar Páll Gunnarsson yrði aðstoðarþjálfari í teyminu.

TENGT EFNI
Hjartasjúkdómur ástæðan fyrir því að Gummi Kristjáns lagði skóna á hilluna
Tilkynning Stjörnunnar
Guðmundur Kristjánsson kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla sem aðstoðarþjálfari og mun jafnframt sinna starfi yfirstyrktarþjálfara knattspyrnudeildar.
Þar fær hann tækifæri til að vinna með leikmönnum á öllum stigum félagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar.
Guðmund þarf vart að kynna fyrir stuðningsmönnum Stjörnunnar. Hann hefur undanfarin ár verið mikilvægur hlekkur í liði félagsins, verið fyrirliði og látið til sín taka bæði innan vallar sem utan.
Með mikla reynslu úr íslenskum fótbolta og atvinnumennsku að baki hefur hann öðlast dýrmæta þekkingu sem nýtist vel í nýju hlutverki.
Við hlökkum til að sjá Gumma í nýju hlutverki og bjóðum hann hjartanlega velkominn!