13.10.26 - 22:26
Elvar Geir Magnússon
Hjartasjúkdómur ástæðan fyrir því að Gummi Kristjáns lagði skóna á hilluna

Guðmundur Kristjánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Kristjánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var ákveðið sjokk. Ég var búinn að vera í rannsóknum," segir Guðmundur Kristjánsson í viðtali við RÚV þar sem hann greinir frá því að hafa greinst með hjartasjúkdóm.
Guðmundur, sem er 37 ára, tilkynnti á dögunum að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna.

TENGT EFNI
Gummi Kristjáns leggur skóna á hilluna
„Ég greindist með hjartasjúkdóm í sumar, þykknun á hjartavöðva. Læknirinn sagði mér að þetta væri algengasta orsökin fyrir því þegar íþróttafólk hnígur niður á leikvelli," sagði Guðmundur Kristjánsson við RÚV.
„Mér var ráðlagt að leggja skóna á hilluna. Endurteknir sprettir og hámarks ákefð eru ekki það sniðugasta í stöðunni fyrir mér eins og er."
Guðmundur var í lykilhlutverki þegar Blikar urðu Íslandsmeistarar árið 2010. Hann á sjö A-landsleiki að baki. Hann lék fyrir Start í Noregi og FH áður en hann gekk í raðir Stjörnunnar þar sem hann lék í fjögur tímabil.
Í viðtalinu við RÚV segist hann ætla að snúa sér að þjálfun eftir að skórnir fara í hilluna, halda áfram sem styrktarþjálfari og fara einnig í fótboltaþjálfun.

Heimild: RÚV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð