Fotbolti.net
16.11.26 - 20:30
Magnús Atlason

Hákon Rafn: Vonandi getur hann haldið áfram að vera í kringum okkur

Auglýsing
Hákon hafði ekki mikið að gera á milli stanganna.

Hákon hafði ekki mikið að gera á milli stanganna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland vann afar sannfærandi 3-0 sigur á Lúxemborg fyrr í kvöld. Fótbolti.net náði tali af Hákoni Rafni Valdimarssyni eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Lúxemborg
"Við spiluðum gríðarlega sterkan varnarleik í dag, pressuðum vel gerðum eiginlega engin mistök á boltanum þannig að þetta var bara frábær leikur hjá liðinu."

Þetta var í fimmta sinn í röð þar sem Hákon og Ísland heldur hreinu, og það hefur ekki gerst áður. Hákon vissi reyndar ekki af því fyrr en í viðtalinu.

"Já, ég vissi það ekki, bara mjög gaman af því, vel gert."

Þetta var síðasti landsleikur Arons Einars. "Hvernig er að missa svona goðsögn?"

"Leiðinlegt, við munum sakna hans gríðarlega mikið. Vonandi getur hann bara komið inn í þjálfarateymið og haldið áfram að vera í kringum okkur."

Sjáðu viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.