Fotbolti.net
16.11.26 - 15:00
Ívan Guðjón Baldursson

Merino: Við Martín þekkjum okkar hlutverk

Merino: Við Martín þekkjum okkar hlutverk
Canon

Mynd: EPA

Mikel Merino var í spænska byrjunarliðinu sem tapaði á heimavelli gegn Englandi í Þjóðadeildinni í gærkvöldi.
Zubimendi með skilaboð til fjölmiðla - „þarf að virða það"
TENGT EFNI

Zubimendi með skilaboð til fjölmiðla - „þarf að virða það"

Merino svaraði spurningum á fréttamannafundi á dögunum og var meðal annars spurður út í lítinn spiltíma hans og Martín Zubimendi með Englandsmeisturum Arsenal.

„Að mínu mati er Arsenal besta félagslið í heimi þessa stundina og með mjög breiðan leikmannahóp. Varamennirnir hjá Arsenal eru nægilega góðir til að vera í byrjunarliðinu og það er mjög erfitt að fá mínútur í þessu liði. Við Martín áttum okkur fullkomlega á stöðunni," sagði Merino.

Mikel Arteta þjálfar Arsenal og var hann miðjumaður á sínum ferli sem fótboltamaður. Arteta, Merino og Zubimendi eru allir frá Spáni og hefur þjálfarinn miklar mætur á samlöndum sínum, þó að þeir fái ekki mikinn spiltíma.

„Þjálfarinn ber mikið traust til okkar og við erum meðvitaðir um okkar hlutverk í leikmannahópnum. Tímabilið er langt og aðstæður breytilegar. Við erum báðir rólegir og leggjum okkur 100% fram á æfingum. Eina sem við getum gert er að bíða eftir okkar tækifæri og nýta það til að sanna að við eigum skilið sæti í byrjunarliðinu."

Arsenal keypti Merino og Zubimendi báða úr röðum Real Sociedad, sem er félagsliðið úr heimabæ Mikel Arteta - San Sebastián. Merino kostaði tæpar 40 milljónir evra á meðan Arsenal borgaði um 65 milljónir fyrir Zubimendi.

Merino og Zubimendi urðu heimsmeistarar með Spáni síðasta sumar og komu báðir við sögu í úrslitaleiknum. Merino reyndist afar mikilvægur með innkomum sínum inn af bekknum yfir mótið en Zubimendi fékk sínar fyrstu mínútur í framlengingu úrslitaleiksins gegn Argentínu.

Zubimendi var í byrjunarliðinu gegn Englandi og fór meiddur af velli á 72. mínútu, en meiðslin virðast lítilvægleg.
Merino: Við Martín þekkjum okkar hlutverk
Canon

Mynd: EPA

Merino: Við Martín þekkjum okkar hlutverk
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.