Þór er úr leik í Lengjubikarnum eftir tap gegn Fylki í undanúrslitum í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Sigurð Heiðar Höskuldsson, þjálfara Þórs, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 2 Fylkir
„Þetta var góður leikur. Við spiluðum megnið af þessum leik mjög vel og Fylkir í rauninni líka. Mér fannst við sterkari aðilinn, stjórnum leiknum en Fylkir töluvert skilvirkari og fengu fullmörg færi sérstaklega í fyrri hálfleik," sagði Siggi
„Síðustu tíu til fimmtán mínúturnar sem lita þennan leik sem við erum í algjöru bulli. Fram að því fannst mér við vera mjög góðir í 30-35 mínútur, náum ekki að skapa nógu mikið. Það er pirrandi að fá ekki fleiri færi miðað við hvernig við vorum að komast upp völlinn og hvernig við vorum að spila. Heilt yfir var þetta góð frammistaða fyrir utan lykilatriði sem við gerðum mjög illa sem við megum ekki vera eins barnalegir í sumar í efstu deild."
Atli Sigurjónsson hefur verið heitur á undirbúningstímabilinu en hann var ekki með í dag vegna smávægilegra meiðsla. Isaac Antanga er ekki kominn til landsins og þá er norskur unglingalandsliðsmaður á leið til liðsins. Siggi hefur ekki áhyggjur af sóknarleiknum.
„Við hljótum að vera búnir að skora flest mörk á undirbúningstímabilinu af öllum liðum, reyndar á móti sérstökum liðum en búnir að raða inn mörkum. Núna þurftum við að hafa meira fyrir því að skora. Þannig verður það í sumar, það þarf að hafa mikið fyrir því að skora. Við vorum ekki nógu hungraðir í að skora. Ég er alls ekki hræddur um það, mér fannst við spila vel og vorum góðir á boltann í uppspili. Ég var ánægður með frammistöðuna fyrir utan lykilmóment."
Athugasemdir






















