Keflavík tekur á móti KA í 4. umferð Pepsi Max-deildar karla á HS-Orkuvellinum en leikar hefjast klukkan 18:30.
Gestirnir, sem byrjað hafa mótið vel, geta með sigri jafnað lið Víkinga á toppi deildarinnar á meðan að heimamenn úr Keflavík geta lyft sér upp í fimmta sæti úr því áttunda með sigri.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá HS-Orkuvellinum
Gestirnir, sem byrjað hafa mótið vel, geta með sigri jafnað lið Víkinga á toppi deildarinnar á meðan að heimamenn úr Keflavík geta lyft sér upp í fimmta sæti úr því áttunda með sigri.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá HS-Orkuvellinum
Heimamenn í Keflavík gera tvær breytingar á liði sínu frá tapinu gegn Blikum í síðustu umferð. Nacho Heras glímir við smávægileg meiðsli og er því ekki í hóp í dag. Þá fær Ari Steinn Guðmundsson sér sæti á bekknum en inn í þeirra stað koma þeir Magnús Þór Magnússon og Adam Árni Róbertsson
Gestirnir gera eina breytingu frá 3-0 sigrinum á Leikni á dögunum Rodrigo Mateo hefur jafnað sig af meiðslum og kemur inn í liðið á kostnað Nökkva Þeys Þórssonar sem fær sér sæti á bekknum.
Byrjunarlið Keflavíkur
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
2. Ísak Óli Ólafsson
5. Magnús Þór Magnússon (f)
7. Davíð Snær Jóhannsson
9. Adam Árni Róbertsson
10. Kian Williams
16. Sindri Þór Guðmundsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Joey Gibbs
24. Rúnar Þór Sigurgeirsson
25. Frans Elvarsson
Byrjunarlið KA
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Haukur Heiðar Hauksson
3. Dusan Brkovic
4. Rodrigo Gomes Mateo
7. Daníel Hafsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f)
14. Andri Fannar Stefánsson
16. Brynjar Ingi Bjarnason
23. Steinþór Freyr Þorsteinsson
27. Þorri Mar Þórisson
Leikir kvöldsins:
18:30 Keflavík - KA
19:15 ÍA - Stjarnan
19:15 KR - Valur
19:15 HK - FH
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir