17.10.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Endrick: Sat á bekknum að spjalla við Guð

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíski sóknarleikmaðurinn Endrick hafði aðeins fengið fjórar mínútur með Real Madrid á upphafi tímabils áður en honum var skipt inn af bekknum gegn AS Roma í miðri viku.

TENGT EFNI
Mourinho: Roma var alveg búið á því
Real var 3-1 undir á Ólympíuleikvanginum í Róm þegar Endrick var skipt inn af bekknum á 59. mínútu, í því sem var aðeins hans annar keppnisleikur undir stjórn José Mourinho.
Endrick skoraði mikilvægt mark í ótrúlegri endurkomu Madrídinga og var valinn sem maður leiksins. Lokatölur urðu 3-4 og var Endrick kátur að leikslokum.
„Ég var á bekknum að spjalla við Guð og að biðja þegar mér var allt í einu sagt að ég ætti að spila. Ég hafði ekki hugmynd um að mér yrði skipt inn svona snemma," sagði Endrick.
„Ég er mjög ánægður að geta lagt mitt af mörkum til að hjálpa, ég er alltaf tilbúinn þegar þjálfarinn þarf á mér að halda. Ég elska Real Madrid og ég treysti því að Mourinho taki þær ákvarðanir sem hann telur vera bestar fyrir liðið. Ef ég er valinn þá spila ég, annars ekki."
Mourinhho er mjög hrifinn af Endrick og útilokaði það í viðtali fyrir leik að hann yrði lánaður út í janúarglugganum, þrátt fyrir áhuga frá AC Milan.
Endrick er tvítugur og kom með beinum hætti að 16 mörkum í 21 leik þegar hann lék að láni hjá Lyon á síðustu leiktíð - með 8 mörk og 8 stoðsendingar.