Fotbolti.net
15.10.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Útilokar að Endrick fari frá Real Madrid

Endrick fagnar marki sínu gegn Roma

Endrick fagnar marki sínu gegn Roma

Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid á Spáni, ítrekaði við fjölmiðla eftir 4-3 sigurinn á Roma í Meistaradeildinni í gær að Endrick verði áfram hjá félaginu út tímabilið.
Mjög ólíklegt að Endrick fari til Milan
TENGT EFNI

Mjög ólíklegt að Endrick fari til Milan

Endrick, sem er 20 ára gamall, hefur fengið fá tækifæri til að sanna sig fyrir Mourinho á tímabilinu.

Í sumar var mikið rætt um að hann gæti farið á láni til Englands eða Ítalíu, en Brasilíumaðurinn vildi sjálfur vera áfram hjá Real Madrid og Mourinho var sömuleiðis ákveðinn í að halda honum í hópnum.

Undanfarna daga hefur aftur farið af stað umræða um möguleg lánsskipti í janúar svo Endrick geti fengið meiri spilatíma, en Mourinho vill ekkert af því heyra.

Hann sagði fyrir leikinn gegn Roma að Endrick væri ekki á förum og ítrekaði það eftir frábæra innkomu Brasilíumannsins, sem skoraði eitt mark og átti þátt í öðru í mögnuðum endurkomusigri Real Madrid.

„Ég segi það aftur og munið það sem ég segi: Endrick fer ekki neitt á láni. Það er alveg útilokað,“ sagði Mourinho.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.