Fotbolti.net
17.10.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Vinícius: Baulin eru ekki hjálpsamleg

Vinícius: Baulin eru ekki hjálpsamleg
Canon

Mynd: EPA

Brassinn Vinícius Júnior hefur ekki verið í stuði á tímabilinu. Hann hefur verið mjög langt frá sínu besta og var dæmdur í fjögurra leikja bann í spænsku deildinni fyrir að toga í hárið á andstæðingi sínum.
Vini Jr í fjögurra leikja bann - Missir af El Clasico
TENGT EFNI

Vini Jr í fjögurra leikja bann - Missir af El Clasico

Hártogið átti sér stað um síðustu helgi og var Vinícius í byrjunarliði Real Madrid sem heimsótti AS Roma í Meistaradeildinni í miðri viku. Vini átti slakan leik og var skipt út af á 59. mínútu þegar Rómverjar voru 3-1 yfir, en liðsfélögum hans tókst að snúa stöðunni við á ótrúlegum lokakafla svo lokatölur urðu 3-4.

„Ég hef ekki áhyggjur af minni eigin frammistöðu, en ég er reiður út í sjálfan mig fyrir að vera ekki besta útgáfan af sjálfum mér. Ég mun ná mér aftur á strik, þetta er ekki það versta sem ég hef upplifað á mínum ferli," sagði Vinícius.

„Ég man þegar ég kom til Real Madrid 18 ára gamall og það var hlegið af mér, fólk sagði að ég kynni ekki að skora. Svo skoraði ég meira en 100 mörk fyrir félagið. Ég hef unnið fullt af titlum hérna sem ég þarf ekki að telja upp.

„Ég vil líka taka fram að baul frá stuðningsmönnum Real Madrid eru ekki hjálpsamleg. Ég myndi frekar vilja finna fyrir stuðningi frá þeim, en ég get skilið gremju þeirra sem kaupa miða. Það er í það minnsta betra að áhorfendur bauli á mig frekar en einhvern upprennandi táning."


Vinícius talaði einnig um rauða spjaldið sem hann fékk gegn Villarreal. Honum þykir fjögurra leikja bann vera afar ósanngjarnt.

„Ég man ekki eftir því að neinn leikmaður hafi fengið fjögurra leikja bann fyrir að toga í hár á andstæðingi, en það er auðvelt að dæma Vini í bann. Hin félögin eru sátt með það og fjölmiðlar eru ánægðir.

„Það er orðið þreytt að varnarmenn megi sparka endalaust í mig en svo er það ég sem fæ gula spjaldið. Það er mikilvægt að vernda fótboltamenn sem geta gert gæfumuninn, eins og mig, Lamine Yamal og Julián Alvarez."
Vinícius: Baulin eru ekki hjálpsamleg
Canon

Mynd: EPA

Vinícius: Baulin eru ekki hjálpsamleg
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.