14.10.26 - 19:09
Brynjar Ingi Erluson
Vini Jr í fjögurra leikja bann - Missir af El Clasico

Vini Jr verður ekki með Real Madrid í næstu fjórum deildarleikjum

Mynd: EPA

Mourinho var ekki sáttur með tímasetninguna á tilkynningunni

Brasilíski sóknarmaðurinn Vini Jr hefur verið úrskurðaður í fjögurra leikja bann af dómaranefndinni á Spáni eftir að hafa fengið rauða spjaldið gegn Villarreal um síðustu helgi.

TENGT EFNI
Spánn: Mark dæmt af Vinicius sem fékk rautt í kjölfarið
Vini Jr fékk að líta rauða spjaldið í síðari hálfleik gegn Villarreal á dögunum, skömmu eftir að hafa komið boltanum í netið.
Í aðdraganda marksins hafði hann togað í hárið á Nathan Saliba, leikmanni Villarreal. Eftir að atvikið var skoðað fékk Brasilíumaðurinn rauða spjaldið og markið var dæmt af.
Dómaranefndin hefur nú úrskurðað Vini Jr í fjögurra leikja bann vegna atviksins. Bannið er ekki eingöngu vegna hártogsins heldur einnig mótmæla hans í kjölfarið.
Þetta eru mikil vonbrigði fyrir Real Madrid enda er ljóst að Vini Jr missir af stórleiknum gegn Spánarmeisturum Barcelona í El Clasico þann 25. október.
Hann verður heldur ekki með gegn Sevilla, Racing Santander og Valencia.
Bannið nær hins vegar ekki til Meistaradeildarinnar og því getur hann spilað gegn Roma í kvöld. Hann verður einnig gjaldgengur gegn RB Leipzig í næstu viku, svo lengi sem hann heldur sér á mottunni í kvöld.
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var spurður út í leikbannið skömmu fyrir leikinn gegn Roma og furðaði sig á tímasetningu tilkynningarinnar.
„Ég held að þú verðir að spyrja spænsku dómaranefndina af hverju hún ákvað að tilkynna þetta aðeins nokkrum mínútum áður en hann á að spila mikilvægan leik í Meistaradeildinni. Real Madrid er spænskt félag, svo af hverju að gera þetta núna? Af hverju ekki í morgun eða á morgun? Af hverju akkúrat rétt fyrir leik?“ sagði og spurði Mourinho.

???? ????????????????????????????????: ???????????????? ???????????????????????????????????? ???????????? ???? ???????????????????? — ???????????????????????? ???????? ???????????????????????????? ????
— 433 (@433) October 14, 2026
Vinícius Jr has been handed a four-game suspension by La Liga and will miss:
? vs Sevilla
? vs Barcelona
? vs Racing
? vs Valencia
He received two games for hair-pulling and another two for aggressive behaviour towards the referee.