17.11.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Á leið frá FH í sænsku D-deildina

Tobias Carlsson er á leið aftur til Svíþjóðar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sænski varnarmaðurinn Tobias Carlsson er á leið frá FH í sænsku D-deildina. Þetta kemur fram í Fotbollskanalen.

TENGT EFNI
Utan hóps og þarf að koma sér í betra stand til að spila
Carlsson, sem er 31 árs, gekk til liðs við FH fyrir tímabilið en lék aðeins sex leiki í Bestu deildinni og einn í Mjólkurbikarnum.
Hann stóð ekki undir væntingum hjá FH og í júní sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari liðsins, að Svíinn væri ekki í nægilega góðu standi og skildi hann því eftir utan hóps.
Carlsson sneri síðan aftur í byrjunarliðið gegn Þór þann 21. júní en meiddist undir lok fyrri hálfleiks og þurfti að fara af velli. Það reyndist hans síðasti leikur í FH-treyjunni.
Nú stefnir hann á að snúa aftur heim til Svíþjóðar og er að semja við uppeldisfélag sitt, Grebbestads IF, sem leikur í D-deildinni þar í landi.
Grebbestads IF hafnaði í fimmta sæti í Norður-Götelandsriðlinum.