17.11.26 - 17:25
Kári Snorrason
Blatter setur spurningarmerki við Diallo

Philippe Diallo.

Mynd: EPA

Sepp Blatter var sjálfur umdeildur.

Mynd: EPA

Philippe Diallo.

Mynd: EPA
Philippe Diallo, forseti franska fótboltasambandsins, mun fara gegn Gianni Infantino í forsetakjöri FIFA sem verður í mars á næsta ári.
UEFA hefur staðfest framboð Diallo en þessi 63 ára Frakki hefur starfað í frönskum fótbolta frá árinu 1992 og varð forseti franska sambandsins árið 2023.
Sepp Blatter, forseti FIFA frá 1998 til 2015, segir lítið koma sér á óvart hafandi starfað innan FIFA í 50 ár en játar þó að hann hafi ekki átt von á framboði frá Diallo.

TENGT EFNI
Hver er Diallo og getur hann skákað Infantino?
„Það kemur mér svolítið á óvart að sjá forseta franska fótboltasambandsins gagnrýna Infantino. Hann er fljótur að skipta um skoðun,“ sagði Sepp Blatter í samtali við franska miðilinn L'equipe og vísaði þar til þess að Philippe Diallo hefði áður stutt Gianni Infantino.
„Ég hef ekkert á móti Diallo og efast ekki um hæfileika hans. Hann á greiða leið að fótboltasamböndunum 54 í Afríku og það er kostur. En hefur hann næg áhrif til að koma í veg fyrir endurkjör Infantino?,“ velti Blatter einnig fyrir sér.
Blatter hefur gagnrýnt Infantino harðlega og vill hann hreinlega stöðva framboð hans, þar sem Infantino hefur ekki farið eftir lögum og reglum FIFA.