Fotbolti.net
17.11.26 - 12:31
Elvar Geir Magnússon
- Fréttaskýring

Hver er Diallo og getur hann skákað Infantino?

UEFA hefur staðfest framboð Frakkans

Philippe Diallo og Emmanuel Macron, forseti Frakklands.

Philippe Diallo og Emmanuel Macron, forseti Frakklands.

Canon

Mynd: EPA

UEFA hefur loksins fundið frambjóðanda til að keppa við Gianni Infantino í forsetakosningunum hjá FIFA á næsta ári.

Framboðsfrestur rennur út annað kvöld en UEFA staðfesti í gær að Philippe Diallo, forseti franska fótboltasambandsins, hefði fengið einróma stuðning framkvæmdastjórnar þess. UEFA segist hafa fullt traust á honum til að leiða alþjóða fótboltasambandið og koma á varanlegum umbótum.

En hefur Diallo það sem þarf til að geta skákað Infantino?
Forseti franska sambandsins gæti óvænt farið á móti Infantino
TENGT EFNI

Forseti franska sambandsins gæti óvænt farið á móti Infantino

Vildu frekar fá annan Frakka
Diallo er ekki sá Frakki sem UEFA vildi helst fá í mótframboð gegn Infantino. Arsene Wenger var efstur á blaði en ekki tókst að sannfæra þennan fyrrum stjóra Arsenal að taka slaginn. Þá þurfti UEFA að snúa sér að öðrum.

Hver er Diallo?
Diallo er 63 ára, hefur starfað í frönskum fótbolta frá árinu 1992 og varð forseti franska sambandsins árið 2023. Hann er ekki þekkt nafn á alþjóðlegan mælikvarða en er óhræddur við að keppa við Infantino og hefur verið duglegur að gagnrýna hann opinberlega.

Diallo fór hörðum orðum um Infantino í september og sagði að hann hefði „alvarlega skaðað ímynd og einingu fótboltans“. Hann segir að endurskoða þurfi allt kerfi FIFA.

„Ég hef þekkt Philippe síðan við vorum bæði kjörin í framkvæmdastjórn UEFA og hann er greindur, heiðarlegur og klókur með mikla reynslu af stjórnun í einu af stærstu fótboltaveldum heims. Mikilvægast er að hann er heiðarlegur maður," segir Laura McAllister, varaforseti UEFA.

Infantino sigurstranglegri
Infantino er enn líklegastur til að vinna meirihluta atkvæða, samtals 211 talsins, og talið er að hann hafi stuðning flestra Afríkuríkja (54 aðildarríki), Asíu (47) og Suður-Ameríku (10).

UEFA bindur vonir við að Diallo geti unnið mikinn stuðning í Afríku og víðar en faðir hans var senegalskur hnefaleikameistari sem keppti fyrir Frakkland á Ólympíuleikunum árið 1960.

Of seint?
Óvissa ríkir enn um nákvæmlega hversu margar af 55 aðildarþjóðum UEFA munu styðja Diallo. Talið er að UEFA hafi haft samband við hann varðandi framboð í síðustu viku og samkvæmt heimildum BBC eru háttsettir aðilar hjá sumum evrópskum samböndum pirraðir að ekki hafi tekist að finna alvöru frambjóðanda fyrr. Einn þeirra, sem ekki er nafngreindur, segir Diallo góðan mann en ekki geta talist þungavigtarmaður.

Sumir eru á þeirri skoðun að frambjóðandi utan Evrópu ætti meiri möguleika á að sameina andstöðuna gegn Infantino.

Lykilmaðurinn bak við tjöldin
Nasser Al-Khelaifi, forseti Paris Saint-Germain og formaður félagsliðasamtaka Evrópu, átti stóran þátt í að sannfæra Diallo um að bjóða sig fram. Katarinn hefur víðtæk tengsl og áhrif hans í evrópskum fótbolta gætu gefið franska frambjóðandanum raunverulegan kraft gegn Infantino.

Aðrir frambjóðendur
Heiðursforseti japanska fótboltasambandsins, Kozo Tashima, hefur tilkynnt að hann muni bjóða sig fram. Einnig Ramon Vega, fyrrum leikmaður Tottenham. Diallo virðist líklegastur til að geta veitt Infantino keppni en hætta er á að atkvæðagreiðslan gegn Infantino verði klofin.
Gianni Infantino og Diallo.

Gianni Infantino og Diallo.

Canon

Mynd: EPA

Hver er Diallo og getur hann skákað Infantino?
Canon

Mynd: EPA

Hinn afar umdeildi.

Hinn afar umdeildi.

Canon

Mynd: EPA

Philippe Diallo ræðir við fjölmiðla.

Philippe Diallo ræðir við fjölmiðla.

Canon

Mynd: EPA

Nasser Al-Khelaifi.

Nasser Al-Khelaifi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.