Fotbolti.net
17.11.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Furðar sig á einu í City-málinu - „Það er bilun“

Þetta er einmitt ein af þessum 90 prósentum frétta sem Solbakken er að tala um.

Þetta er einmitt ein af þessum 90 prósentum frétta sem Solbakken er að tala um.

Canon

Mynd: EPA

Ståle Solbakken, þjálfari norska landsliðsins, var spurður út í Erling Braut Haaland og þá ákvörðun hans að svara spurningum fjölmiðla um mál ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester City.
Haaland tjáði sig um City-málið: Á ég að svara þessu?
TENGT EFNI

Haaland tjáði sig um City-málið: Á ég að svara þessu?

Haaland mætti í fyrsta sinn í viðtal við fjölmiðla til að svara spurningum um City eftir að félagið var fundið sekt um brot á fjárhagsreglum deildarinnar í 114 af 115 ákæruliðum.

Man City hafði fyrsta mánuðinn tekið skýrt fram við fjölmiðla að ekki mætti spyrja út í málið, en nú hefur verið slakað á þeim reglum og ræddi Haaland málið við TV2 um helgina.

Solbakken var spurður hvað honum fyndist um að Haaland væri farinn að mæta í viðtöl og svara spurningum um málið, en hann skilur lítið í því að norski framherjinn sé settur í þá stöðu.

„Menn þurfa að fara varlega. Við erum auðvitað sammála því að það þurfi að vera gagnsæi og að fjölmiðlar fái að spyrja þeirra spurninga sem þeir vilja, en það sem þið þurfið að muna er að hann er ein stærsta stjarna fótboltaheimsins og allt sem hann segir fer út um allan heim.“

„Hann var ekki hluti af félaginu á því tímabili sem það er til rannsóknar, en samt er það hans andlit sem er framan á 90 prósent af fréttum um málið. Það er bilun,“
sagði Solbakken.

City hefur áfrýjað niðurstöðu óháðrar nefndar og er búist við að niðurstaða í áfrýjunarmálinu liggi fyrir snemma á næsta ári. Það verður þó að teljast afar ólíklegt að málinu ljúki endanlega þá.
Ståle Solbakken, þjálfari Noregs

Ståle Solbakken, þjálfari Noregs

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.