Fotbolti.net
17.11.26 - 20:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

PSV Eindhoven býður í De Bruyne

PSV Eindhoven býður í De Bruyne
Canon

Mynd: EPA

Belgíska goðsögnin Kevin De Bruyne er aðeins með sjö mánuði eftir af samningi sínum við Napoli í ítalska boltanum og vill komast burt frá félaginu sem fyrst.
De Bruyne vill flytja frá Ítalíu
TENGT EFNI

De Bruyne vill flytja frá Ítalíu

De Bruyne fjölskyldunni líður ekki vel í Napólí og vill flytja aftur heim til Limburg, sem er hérað sem nær yfir austasta hluta í suður-Hollandi og norður-Belgíu. Hollenska borgin Eindhoven er stödd rétt hjá Limburg og hefur PSV Eindhoven lagt fram kauptilboð í De Bruyne.

PSV er ríkjandi meistari í hollensku deildinni og trónir í efsta sæti sem stendur, með 26 stig eftir 12 umferðir.

Lutsharel Geertruida (á láni), Ivan Perisic, Ruben van Bommel, Ricardo Pepi og Filip Kostic eru meðal leikmanna félagsins sem vill gera De Bruyne að stjörnuleikmanni sínum.

De Telegraaf segir að PSV hafi lagt fram 2 milljón evra tilboð í De Bruyne, en líklegt er að Napoli vilji talsvert hærri upphæð til að selja einn af sínum lykilmönnum í janúarglugganum.

De Bruyne er meðal launahæstu leikmanna Serie A deildarinnar og er sagður reiðubúinn til að taka á sig umtalsverða launalækkun til að flytja aftur heim.
PSV Eindhoven býður í De Bruyne
Canon

Mynd: EPA

Holland efsta deild - karlar

#LiðLmunStig
1PSV12+2526
2Feyenoord12+1925
3Ajax12+1725
4Twente12+1824
5AZ12+823
6Heerenveen12+821
7Fortuna Sittard12020
8Go Ahead Eagles12-317
9Groningen12+115
10Cambuur Leeuwarden12-215
11NEC12-114
12Sparta Rotterdam12-812
13Zwolle12-1112
14Utrecht12-1312
15Excelsior12-1311
16Telstar12-710
17ADO Den Haag12-99
18Willem II12-293
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.