Fotbolti.net
16.11.26 - 09:10
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

De Bruyne vill flytja frá Ítalíu

De Bruyne vill flytja frá Ítalíu
Canon

Mynd: EPA

Belgíski miðjumaðurinn Kevin De Bruyne er ekki að njóta lífsins á Ítalíu. Hann og eiginkona hans Michéle De Bruyne vilja ólm flytja úr landinu, en Kevin er samningsbundinn Napoli út keppnistímabilið.
De Bruyne til Hollands?
TENGT EFNI

De Bruyne til Hollands?

De Bruyne er einn af launahæstu leikmönnum ítölsku deildarinnar en þegar hann skrifaði undir hjá Napoli bjóst hann við að vera að skrifa undir hjá liði sem myndi spila sóknarþenkjandi fótbolta, en svo var ekki. Alls ekki.

Antonio Conte notaði 4-5-1 leikkerfi á fyrsta tímabili De Bruyne hjá félaginu og þurfti Belginn að sinna of mikilli varnarvinnu fyrir sinn smekk. Hann reyndist þó einn af betri leikmönnum Napoli er liðið endaði í öðru sæti Serie A deildarinnar, með 76 stig - 11 stigum á eftir toppliði Inter.

Max Allegri var svo ráðinn inn á stormasömu sumri eftir að Conte lenti upp á kant við Aurelio De Laurentiis eiganda Napoli og viðurkenndi De Bruyne að hann hafi fagnað þegar hann frétti af brottrekstri Conte. Allegri var þó ekki mikið skárri kostur, enda ekki þekktur fyrir að spila glimrandi sóknarleik, og situr Napoli um miðja deild undir hans stjórn, með 15 stig eftir 11 umferðir.

„Því fyrr sem við förum frá Napólí því betra," sagði Michéle De Bruyne í viðtali við belgíska tímaritið NINA.

Michéle er 32 ára gömul, tveimur og hálfu ári yngri heldur en Kevin og eiga þau þrjú börn saman.

„Við segjum sífellt oftar við hvort annað að við viljum flytja aftur heim til Limburg. Því fyrr sem það gerist, því betra.

„Veðrið í Napólí er frábært og maturinn líka, en við söknum þess að eiga einkalíf. Við getum ekki farið úr húsi án þess að vekja athygli á okkur, við getum ekki gert neitt saman sem fjölskylda út af stöðugri truflun frá fólki í kring.

„Þetta var öðruvísi í Manchester, fólk sá okkur svo oft úti að það var enginn að kippa sér upp við það. Við gátum farið út án þess að það væri tekin ein einasta mynd af okkur. Það er ekki hægt í Napólí."


Michéle segir að eiginmaðurinn sinn sé búinn að vinna alla helstu titla í fótboltaheiminum svo núna sé fjölskyldan komin í forgang.

„Á ákveðnum tímapunkti hættir fótboltinn að vera í forgangi, sérstaklega þegar maður er búinn að vinna nánast allt sem er í boði. Til hvers ættum við að snúa lífi barna okkar á hvolf?"

Kevin De Bruyne var í byrjunarliði Belgíu og gaf stoðsendingu í 4-1 sigri gegn Ítalíu í Þjóðadeildinni í gærkvöldi.
De Bruyne vill flytja frá Ítalíu
Canon

Mynd: EPA

De Bruyne vill flytja frá Ítalíu
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.