Segir Ísland hafa verið sterkara - „Ræðst á einni vítaspyrnu“
,,Náðum ekki að koma helvítis blöðrunni yfir línuna"

Vantaði sáralítið upp á svo Ísland kæmist í þriðja sinn á EM.

Mynd: KSÍ

Lúðvík Gunnarsson ræddi við Fótbolta.net.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan skoraði glæsilegt mark í gærkvöldi.

Mynd: KSÍ

Leikurinn í gær fór alla leið í vítaspyrnukeppni.

Mynd: KSÍ

Svekkjandi niðurstaða.

Mynd: KSÍ

Þetta var stór leikur og andrúmsloftið var fjandsamlegt (e. hostile) og skemmtilegt.

Mynd: KSÍ

Nokkrar myndir úr fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Vantaði sáralítið upp á svo Ísland kæmist í þriðja sinn á EM.

Mynd: KSÍ

Í þessu tveggja leikja einvígi komst Ísland yfir í báðum leikjunum en í uppbótartíma beggja leikja náði Grikkland að jafna.
Fótbolti.net ræddi við Lúðvík Gunnarsson, annan af þjálfurum liðsins, í dag.
„Þetta var ótrúlega jafnt einvígi, rosalega lítið á milli þessara liða. Að mínu mati erum við að fá betri færi í báðum leikjum, heilt yfir, en við sofnum aðeins á verðinum undir lok beggja leikja sem gerði það að verkum að þetta þurfti að fara í þessa blessuðu vítaspyrnukeppni."
„Flottir leikir, leikplanið gekk að mestu leyti upp, en við náðum ekki að klára færin," segir Lúðvík.
Daníel Tristan Guðjohnsen kom Íslandi yfir í gær og í kjölfarið var tækifæri til að tvöfalda þá forystu áður en Grikkir svo jöfnuðu.
„Það var svekkjandi. Við fáum gott færi í stöðunni 1-0 þegar það var ekki mikið eftir, setjum boltann rétt framhjá stönginni á fjær. Svo fáum við annað ágætis færi í framlengingunni. Þetta er bara svona, við kláruðum ekki færin nægilega vel og þ.a.l. var þetta erfitt. Þeir héldu sér alltaf inni í leiknum."
Leikplanið gekk upp
Var eitthvað við Grikkina sem kom þér á óvart yfir þessar 210 mínútur?
„Nei, í rauninni ekki. Við vorum búnir að skoða þá mjög vel og þeir vildu reyna að spila eins og þeir gerðu í riðlakeppninni. Við náðum að gera ofboðslega vel og loka á þá. Þeir skoruðu fullt af mörkum í riðlinum en voru í bölvuðu brasi gegn okkur. Við sköpuðum fullt af færum en vorum klaufar að nýta þau ekki. Þetta var nokkurn veginn eins og maður bjóst við og mér fannst við heilt yfir sterkari í gegnum einvígið."
Grikkir gerðu markmannsbreytingu í leiknum á Íslandi vegna meiðsla og sá sem kom inn í þeim leik byrjaði seinni leikinn og átti góðan leik.
„Þeir eru með öfluga leikmenn, góða breidd. Við sjálfir gerðum þrjár breytingar frá fyrri leiknum, það fylgir þessu. Það er mikilvægt að nýta hópinn þegar það er stutt á milli leikja."
Réðist á einni vítaspyrnu
Er einhver eftirsjá eftir þessa leiki?
„Nei, ekki þannig. Þetta ræðst á einni vítaspyrnu. Strákarnir gerðu ofboðslega vel, gerðu nokkurn veginn eins og upp var lagt, nema við náðum ekki að koma helvítis blöðrunni yfir línuna. Það er fyrir mér það sem skilur á milli að lokum, ein vítaspyrna."
Fer í reynslubankann
Núna ganga 2004 og 2005 strákarnir upp úr U21 landsliðinu. Hvað heldur þú að þeir taki með sér?
„Þeir taka með sér mikla reynslu, þessi leikur í gær fer í reynslubankann hjá mörgum og kannski sérstaklega hjá þeim sem hafa ekki spilað stóra Evrópuleiki. Þetta var stór leikur og andrúmsloftið var fjandsamlegt (e. hostile) og skemmtilegt. Strákarnir taka þetta með sér inn í næsta skref, það er mikilvægt að hafa spilað leiki í svona andrúmslofti, láta ekki tilfinningar trufla það sem maður er að gera. Mér fannst strákarnir gera það frábærlega í gær."
„Það er búinn að vera frábær stígandi í leik þessa liðs, búið að vera mikið af leikmönnum sem hafa komið inn, þetta eru 30+ leikmenn sem hafa tekið þátt í þessum verkefnum síðan í nóvember í fyrra. Strákarnir taka líka vonandi helling með sér frá okkur þjálfurunum."
Fjandsamlegt andrúmsloft
Talandi um fjandsamlegt andrúmsloft, voru fleiri stuðningsmenn en þú bjóst við á leiknum?
„Ég var búið að heyra af því að það yrðu mögulega um sjö þúsund manns. Það var frítt inn á leikinn líka og þetta endaði hátt í 10 þúsund manns. Þetta er skemmtilegur völlur, mikil gryfja þar sem andrúmsloftið verður einhvern veginn ofan á þér. Mér fannst þeir gera þetta mjög vel. Við þurftum að spila heima klukkan eitt á fimmtudegi en þetta var kvöld leikur, frábær mæting og þeir fengu mikla orku frá fólkinu sínu. Það var erfitt fyrir okkur að búa til þá stemningu heima. Það var virkilega gaman að taka þátt í þessu."
Hafa fengið mikið hrós
Lúðvík kom inn sem þjálfari U21 liðsins fyrir rúmu ári síðan þegar Ólafur Ingi Skúlason tók við Breiðabliki. Hvernig gerir hann upp síðast ár?
„Við Óli (Kristjáns) komum inn í þetta saman. Ég tók fyrsta leikinn á móti Lúxemborg úti í nóvember og svo vorum við saman með þetta. Það sem ég tek út úr þessu er góður stígandi, við erum búnir að finna nákvæmlega hvernig við viljum spila og reynum að vera stöðugir í því hvað við erum að predika svo leikmenn eru nákvæmlega með það á hreinu hvað þeir eiga að gera. Þeir sem koma inn í lið fara inn í ákveðið módel og því auðveldara að stíga inn í þau."
„Mér fannst við gera það mjög vel, höfum fengið mikið hrós frá þjálfurum liða í kringum okkur. Við spiluðum við Færeyingana og Grikkirnir hrósuðu okkur mikið fyrir okkar leik þrátt fyrir miklar breytingar milli glugga."
„Það hefur verið flottur stígandi, við höfum unnið þetta nokkuð vel upp yngri landsliðin. Þegar komið er í U21 landsliðið snýst þetta um að ná því fram."
Lúðvík er gríðarlega stoltur af strákunum eftir einvígið, segir þetta hafa verið stöngin út.
Vill halda áfram
Hefur átt sér stað eitthvað samtal um þína framtíð? Verður þú áfram þjálfari liðsins?
„Það hefur ekki átt sér stað samtal, kláruðum náttúrulega bara í gær. Ég geri ráð fyrir því að það eigi sér stað samtal á næstu dögum," segir Lúðvík sem vill halda áfram í starfinu. „Svo kemur í ljós hvort það gangi eftir."
Lúðvík þakkaði að lokum starfsteymi landsliðsins fyrir sína vinnu. „Við komum inn í miðri keppni, höfum haldið svipuðu teymi frá því að við byrjuðum. Þetta er frábært teymi sem einfaldar okkar vinnu, hópurinn í kringum liðið hefur verið frábær og það hjálpar til að ná árangri."

Lúðvík Gunnarsson ræddi við Fótbolta.net.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan skoraði glæsilegt mark í gærkvöldi.

Mynd: KSÍ

Leikurinn í gær fór alla leið í vítaspyrnukeppni.

Mynd: KSÍ

Svekkjandi niðurstaða.

Mynd: KSÍ

Þetta var stór leikur og andrúmsloftið var fjandsamlegt (e. hostile) og skemmtilegt.

Mynd: KSÍ

Nokkrar myndir úr fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
