Danojel Dejan Djuric var í síðustu viku tilkynntur sem nýr leikmaður KA. Hann var keyptur frá króatíska félaginu NK Istra og skrifaði undir þriggja ára samning við KA.
Talið er að kaupverðið sé í kringum 18 milljónir króna sem gerir Danijel að næst dýrasta leikmanni í sögu íslenska boltans á eftir Gylfa Þór Sigurðssyni.
Talið er að kaupverðið sé í kringum 18 milljónir króna sem gerir Danijel að næst dýrasta leikmanni í sögu íslenska boltans á eftir Gylfa Þór Sigurðssyni.
Danijel var spurður út í verðmiðann í viðtali við Fótbolta.net á dögunum.
„Það er það," sagði Danijel spurður út í það hvort verðmiðinn væri mikill heiður. „Þetta er mikill peningur en ég pæli samt eiginlega ekkert í því."
„Ég pæli bara í því sem gerist inn á vellinum og að sýna fólkinu hvað er gaman að vera í fótbolta, að lita heiminn nokkrum litum. Það er ég."
Hægt er að horfa á allt viðtalið í spilaranum hér fyrir neðan.
Athugasemdir




