Fotbolti.net
18.11.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Heimir: Umspilsleikurinn er bónus

Heimir: Umspilsleikurinn er bónus
Canon

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson svaraði spurningum fréttamanna eftir mikilvægan sigur á heimavelli gegn Kósovó í Þjóðadeildinni í gærkvöldi.
Þjóðadeildin: Írland í umspil um sæti í A-deild
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Írland í umspil um sæti í A-deild

Írar unnu leikinn 3-0 og tryggðu annað sæti riðilsins, sem gefur þeim umspilsleik um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar.

„Markmiðinu hefur verið náð og umspilsleikurinn sem við fáum er bónus. Það var mikilvægt að ná öðru sætinu fyrir styrkleikaröðunina í undankeppni EM. Þetta eykur líkurnar okkar á að enda í fjögurra liða undanriðli frekar en fimm liða," sagði Heimir.

„Leikmenn Kósovó voru að kasta sér í jörðina öskrandi og æpandi en við ræddum um það fyrir leikinn að halda einbeitingu og strákarnir gerðu það. Við héldum fótunum á jörðinni og þó að okkur hafi ekki tekist að skora í byrjun leiksins þá héldum við okkar striki og verðskulduðum sigurinn fyllilega.

„Ég er mjög ánægður með framlag strákanna, þeir voru einbeittir og lögðu mikla vinnu í þetta. Stundum byrja leikmenn aðeins að svindla og sinna minni varnarvinnu þegar þeir eru yfir, en það gerðist ekki í kvöld. Við pressuðum þá maður á mann hátt upp völlinn og uppskárum flottan sigur."
Heimir: Umspilsleikurinn er bónus
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.