18.11.26 - 13:23
Elvar Geir Magnússon
Stoke minnist Guðjóns fyrir leik helgarinnar

Guðjón Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Guðjón Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Fyrir leik Stoke City og Birmingham á laugardaginn verður klappað til mínútu og minning Guðjóns Þórðarsonar heiðruð.
Guðjón, sem lést í síðustu viku, var stjóri Stoke City á árunum 1999 til 2002. Þar vann hann neðrideildabikarinn á Wembley og kom félaginu upp í B-deildina vorið 2002.
Fyrir leikinn á heimavelli Stoke á laugardag verður einnig minning Peter Dobing heiðruð en hann lést undir lok síðasta mánaðar, 87 ára að aldri. Hann var fyrirlið Stoke sem vann deildabikarinn 1972.

TENGT EFNI
Guðjón Þórðarson - Fimmtíu ára ferill
Víðir Sigurðsson fór yfir feril Guðjóns í grein sem birtist hér á Fótbolta.net á dögunum. Hér er kaflinn þar sem fjallað er um stjóratíð hans hjá Stoke:
Með íslenskum athafnamönnum til Stoke
En þá var ljóst að þetta yrði síðasti leikur Guðjóns með íslenska landsliðið. Íslenskir athafnamenn voru á sama tíma að festa kaup á enska C-deildarfélaginu Stoke City og þeirra maður í stól knattspyrnustjóra var enginn annar en landsliðsþjálfarinn – Guðjón Þórðarson.
Hann varð þar með fyrsti og eini Íslendingurinn til þessa sem gegnt hefur starfi knattspyrnustjóra hjá ensku atvinnufélagi.
Bikarsigur á Wembley
Verkefni Guðjóns og Íslendinganna var að rétta við gengi Stoke sem hafði fallið úr B-deildinni skömmu áður og oft leikið í efstu deild. Það tókst smám saman og Guðjón varð afar vinsæll meðal stuðningsmanna félagsins þegar Stoke vann Bristol City í úrslitaleik neðrideildabikarsins frammi fyrir 85 þúsund áhorfendum á Wembley-leikvanginum í London. Þangað mætti líka mikill fjöldi Íslendinga til að fylgjast með sínum manni.
Arnar Gunnlaugsson, núverandi landsliðsþjálfari karla, Bjarni Guðjónsson, sonur stjórans, og Brynjar Björn Gunnarsson voru þar allir í liði Stoke, sem átti eftir að tefla fram mörgum Íslendingum á næstu árum.
Kom Stoke upp um deild
Guðjón stýrði Stoke í þrjú ár. Liðið var í stöðugri baráttu um að komast upp, féll tvisvar út í umspili en tryggði sér sæti í B-deildinni með því að sigra Brentford 2-0 í úrslitaleik umspilsins vorið 2002. En það var kveðjuleikur Guðjóns hjá félaginu. Landar hans höfðu ákveðið að skipta um karlinn í brúnni og því skildu leiðir.

On Saturday, we honour two Potters who provided lasting memories for Stokies of their respective eras.
— Stoke City FC (@stokecity) November 17, 2026
A minute's applause will be held prior to kick-off in memory of Peter Dobing and Gudjon Thordarson. https://t.co/uXFRfaLjwn

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Birmingham | 15 | +14 | 29 |
| 2 | Middlesbrough | 15 | +11 | 29 |
| 3 | Stoke City | 15 | +6 | 29 |
| 4 | Wolves | 15 | +8 | 28 |
| 5 | West Brom | 15 | +8 | 28 |
| 6 | Swansea | 15 | +4 | 26 |
| 7 | Southampton | 15 | +14 | 24 |
| 8 | QPR | 15 | +6 | 24 |
| 9 | West Ham | 15 | +14 | 23 |
| 10 | Sheffield Utd | 15 | +2 | 22 |
| 11 | Portsmouth | 15 | +2 | 22 |
| 12 | Norwich | 15 | +8 | 21 |
| 13 | Blackburn | 15 | -1 | 21 |
| 14 | Cardiff City | 15 | 0 | 18 |
| 15 | Wrexham | 15 | -2 | 18 |
| 16 | Millwall | 15 | -4 | 18 |
| 17 | Bristol City | 15 | -8 | 18 |
| 18 | Bolton | 15 | -9 | 17 |
| 19 | Charlton Athletic | 15 | -10 | 17 |
| 20 | Watford | 15 | -10 | 15 |
| 21 | Lincoln City | 15 | -11 | 15 |
| 22 | Burnley | 15 | -9 | 10 |
| 23 | Derby County | 15 | -16 | 10 |
| 24 | Preston NE | 15 | -17 | 8 |