Fotbolti.net
19.07.26 - 19:52
Ívar Björgvinsson

Aron Sig: Kominn með þennan gullskó

Auglýsing
Aron Sig: Kominn með þennan gullskó
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR tók á móti Stjörnunni á Meistaravöllum í 15. umferð Bestu deildar karla. Leiknum lauk með 5-0 stórsigri KR en Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Aroni Sigurðarsyni, fyrirliða KR, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: KR 5 - 0 Stjarnan

„Ef þú horfir á tölurnar var þetta okkar besti leikur í sumar, frammistaðan var góð nánast í 90 mínútur, vorum góðir sóknarlega og góðir varnarlega. Við komumst í stöður nánast í hvert einasta skipti sem við vorum með boltann og fórum upp völlinn. Við höfum átt fullt af flottum frammistöðum og þessi er nálægt toppnum ef ekki á toppnum.''

Þessi sigur var afar sannfærandi hjá KR og Stjarnan átti í rauninni aldrei möguleika.

„Nei en Stjarnan er með frábært lið, mjög vel mannaðir og vel gíraðir, við vissum að þeir væru að koma úr Evrópuverkefni og voru í erfiðum leik úti í Færeyjum og eru að fara í annan núna í næstu viku. Þeir breyttu aðeins liðinu en við vissum að það væru þreyttar lappir þarna inni á milli og við vorum meðvitaðir um að gefa enn meira í og þá við fundum það frá fyrstu mínútu að við vorum ofan á í dag.''

Aron er kominn með 16 mörk í jafn mörgum leikjum og er langmarkahæsti maður deildarinnar. Markamet efstu deildar er 21 mark en Aron þarf því sex mörk í ellefu leikjum til að ná bæta það.

„Með hverjum leik sem þú skorar mark þá nálgast þú þetta met og ég sagði í einhverju viðtali um daginn að ég er búinn að slá þetta met. Það er bara hugsunin núna, ég er búinn að slá þetta met, ég er kominn með þennan gullskó og bara áfram gakk. Ég reyni bara að hjálpa liðinu, skapa færi og skora mörk sjálfur, ég held að það sé helsta starfið mitt í þessu liði og ég reyni að gera það í hverjum einasta leik.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.