SKÝRSLAN: Fyrsta hreina lak KR á tímabilinu
Hvað réði úrslitum?
KR mætti til leiks en Sjarnan ekki. Þetta var yfirspilun frá fyrstu mínútu og leikurinn hefði getað endað töluvert verr fyrir Stjörnuna. KR komst nánast í góða stöðu í hvert einasta skipti sem þeir voru með boltann. Stjarnan var vissulega að koma úr Evrópuleik og farandi í annan og breyttu liðinu talsvert.
Bestu leikmenn
1. Aron Sigurðarson
Fyrirliðinn skorar tvö í dag og er enn og aftur allt í öllu í sóknarleik KR sem hefðu getað skorað svona 17 mörk í dag.
2. Eiður Gauti Sæbjörnsson
Skorar einnig tvö en hefði getað skorað allavega tvö í viðbót, var engu að síður góður í leiknum og tvö mörk ekkert til að kvarta yfir þó hann hefði eflaust viljað þrennuna.
Atvikið
Ætli það sé ekki bara 16. mark Arons á tímabilinu. Orri Hrafn fiskaði vítið og Aron skoraði en það mark þýðir að hann sé kominn með 16 mörk í 16 leikjum, miðað við þessar tölur endar hann mótið með 27 mörk og rústar markametinu.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að KR er aftur komið í 2. sætið þó Fram eigi leik inni á KR. Þeir hafa skorað 58 mörk í fyrstu 16 leikjum mótsins og fengið á sig 36 sem hlýtur að vera einhvers konar met, Víðir Sig tékkar á því fyrir okkur. Stjörnunni mistókst hins vegar að lyfta sér upp fyrir Keflavík og komast í efri hlutann.
Vondur dagur
Allt lið Stjörnunnar var afar slakt, en enginn einn stóð upp úr. Vörn Stjörnunnar hélt engan veginn neinum takti, miðjan var gjörsamlega yfirspiluð af KR-ingum og framlínan gerði ekkert í leiknum. Bjarki Hauksson tók innkast sem dreif ekki inn á völlinn sem stóð upp úr í leik Garðbæinga og hann má því taka á móti þessum heiðri.
Dómarinn - 5
ÞÞÞ hefur eflaust átt betri leiki en hann var slakur í dag. Mikið af litlum brotum sem óþarfi var að flauta á og nokkrum sinnum rangar ákvarðanir sem flestir aðrir sáu að voru ekki réttar.



