Dóri Árna: Getum gert hann betri og hann okkur að betra liði

Keyptur frá ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kominn í Valstreyjuna.

Mynd: Valur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlynur Freyr er leikmaður Brommapojkarna í Svíþjóð. Hann lék með Val tímabilið 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Myles Veldman verður ekki áfram.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Samningur Makus Nakkim er útrunninn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miklar breytingar á hópnum síðustu mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keyptur frá ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ómar er 22 ára sóknarmaður sem kom til ÍA frá uppeldisfélaginu Fylki eftir tímabilið 2024. Hjá Val fetar hann í fótspor föður síns, Stefáns Metúsalem Ómarssonar, og hittir fyrir yngri bróður sinn, Stefán Gísla.
Fótbolti.net ræddi við þjálfara Vals, Halldór Árnason, um nýjasta leikmanninn.

Ómar Björn í Val (Staðfest)
Hvernig líður þér með að vera búinn að landa Ómari Birni og hvernig mun hann nýtast Val?
„Ég er fyrst og fremst gríðarlega ánægður með að hafa náð að ganga frá kaupum á Ómari Birni. Ómar er frábær leikmaður sem hefur ekki enn náð þakinu sínu og við höfum trú á að við getum gert hann ennþá betri, og hann okkur að betra liði. Ómar er góður fótboltamaður með mikinn hraða og frábært hugarfar, sem er ekki síst það sem við erum að leita að."
„Ómar mun nýtast sóknarlega í að keyra á menn og ógna aftur fyrir línu. Varnarlega verður hraði hans og dugnaður mjög mikilvægur í að pressa lið hátt uppi á vellinum," segir þjálfarinn.
Valur reyndi að fá hann í sumar, hafðir þú eitthvað með það að gera?
„Ég vissi af því að það hafi verið send fyrirspurn á ÍA og að Ómar hafi verið einn af þeim leikmönnum sem Valur skoðaði að taka inn í sumarglugganum. Það hefur hins vegar verið ljóst af minni hálfu eftir að ég tók við að við þyrftum að gera aðra og betri tilraun til að ná honum, og sem betur fer gekk það upp."
Átti frábæra frammistöðu á móti þjálfaranum í fyrra
Hann átti frábæran leik á Kópavogsvelli 2025 þegar þú varst að þjálfa á móti hans liði, var það þá sem áhuginn kviknaði?
„Það er rétt, hann átti virkilega góðan leik þann dag, eins og svo oft í Skagatreyjunni. En nei ég vissi hver hann var og hafði spilað við hann áður. Sem betur fer kannski fer scouting fram á töluvert meiri dýpt en bara staka leiki. Og það er þar sem Ómar virkilega stóð upp úr, hvort sem það var frammistaða í lengri tíma eða tölur í þeim þáttum leiksins sem lögðum áherslu á."
Horfa áfram í styrkingar
Nú ertu búinn að fá inn einn sóknarmann, hvað sérðu svona næst fyrir þér í leikmannamálum?
„Við erum mjög ánægðir með hópinn eins og hann er í dag. En það er ljóst að það hafa töluvert margir leikmenn yfirgefið liðið sl. mánuði og við erum ennþá að horfa í styrkingar. Það er ekkert í hendi eins og staðan er núna og það verður bara að koma í ljós hvort að það komi fleiri leikmenn áður en æfingar hefjast, við munum ekki taka neina leikmenn inn nema af vel yfirlögðu ráði."
Hlynur er leikmaður Brommapojkarna
Þið hafið verið orðaðir við Hlyn Frey Karlsson og slúðrað um að BP hafi hafnað tilboði frá ykkur, var langt á milli og verður reynt aftur?
„Það er búið að orða okkur við svo marga leikmenn að ef þeir kæmu allir þyrftum við að vera með þrjú lið í deildinni," segir Dóri á léttu nótunum.
„Hlynur er leikmaður Brommapojkarna og ég hef í raun ekki neinu við það að bæta."
Óskum þeim alls hins besta
Vilt þú eitthvað tjá þig um Myles Veldman og Markis Nakkim sem eru með lausa samninga?
„Bæði Myles og Markus eru góðir leikmenn sem lögðu sig alla fram fyrir félagið og spiluðu á köflum virkilega vel. En eins og þú bendir á þá eru samningarnir þeirra runnir út og bæði ég og allir í Val óskum þeim alls hins besta í þeirra næsta verkefni."
Átta reynslumiklir menn farnir - Sex komnir inn
Frá því að Dóri var tilkynntur sem verðandi þjálfari Vals í lok júní hefur Hólmar Örn Eyjólfsson hætt, samningar Myles Veldman og Markus Nakkim eru runnir út, Bjarni Mark Duffield er farinn til Svíþjóðar, Kristinn Freyr Sigurðsson í Aftureldingu, Adam Ægir Pálsson samdi við KA í sumar, Tryggvi Hrafn Haraldsson samdi við ÍA og Aron Jóhannsson kláraði sinn samning og fótboltaferil - en hann var leystur undan starfsskyldu fyrir tæpu ári síðan. Skömmu áður en Dóri tók við hélt Ögmundur Kristinsson í Víking.
Á móti hefur Valur fengið Shkelzen Veseli, Tómas Bjarka Jónsson, Tuma Fannar Gunnarsson, Sigurð Arnar Magnússon, Ómar Björn Stefánsson og hinn unga Kristófer Loga Einarsson.

Kominn í Valstreyjuna.

Mynd: Valur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlynur Freyr er leikmaður Brommapojkarna í Svíþjóð. Hann lék með Val tímabilið 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Myles Veldman verður ekki áfram.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Samningur Makus Nakkim er útrunninn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miklar breytingar á hópnum síðustu mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

