Fotbolti.net
05.11.26 - 13:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Dóri mættur á Hlíðarenda - „Ég vil að Valur spili annan fótbolta"

Ég vil búa til kúltúr, orkumikið lið, sem mun að lokum ná árangri

Ég vil búa til kúltúr, orkumikið lið, sem mun að lokum ná árangri

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Árnason er formlega tekinn við sem þjálfari Vals en hann var tilkynntur sem verðandi þjálfari meistaraflokks karla í lok júní.

Á þeim tímapunkti ákvað stjórn Vals að láta Hermann Hreiðarsson fara og aðstoðarþjálfarinn, Chris Brazell, stýrði liðinu út tímabilið.

Dóri, eins og Halldór er oftast kallaður, tekur við liðinu rúmlega ári eftir að hafa verið látinn fara frá Breiðabliki. Hjá Breiðabliki gerði Dóri liðið að Íslandsmeisturum 2024 og var aðstoðarmaður Óskars Hrafns þegar liðið varð meistari 2022. Tímabilin 2023 og 2025 komst Breiðablik í Sambandsdeildina.

Langtímamarkmiðið hjá Val, samkvæmt þjálfaranum, er að berjast um titla og Evrópusæti.

Þjálfarinn ræddi við Fótbolta.net um nýja starfið.
Spennandi tímar framundan
Hvernig er að vera formlega orðinn þjálfari liðsins og byrjaður að starfa fyrir Val?

„Það er auðvitað búinn að vera langur undanfari, bara gaman að vera loksins tekinn við, farinn að mæta í Valsheimilið, búinn að setja saman frábært teymi og gaman að hitta strákana á morgnana. Það eru virkilega spennandi tímar framundan."

Ýmis verk framundan
Hver eru svona fyrstu verk?

„Að setja sig inn í hlutina og að kynnast fólkinu í Val, kynnast klúbbnum, setjast niður með teyminu og forgangsraða því sem þarf að gera. Það eru praktískir hlutir eins og að koma okkur fyrir á skrifstofunni, aðeins að lappa upp á klefann og aðstöðuna og gera það svolítið okkar. Í rólegheitum förum við í gegnum leiki síðasta sumars, í gegnum hópinn; hvar styrkleikarnir liggja og hvar við getum mögulega þurft að styrkja okkur. Við ætlum að styrkja vel tengingar niður í yngri flokkana; skoða þá efnilegu stráka sem koma þar upp. Það er ýmislegt sem þarf að klára áður en hópurinn kemur saman til æfinga."

Fyrsta æfing 1. desember
Hvenær ætlið þið að byrja að æfa?

„Við ætlum að funda í lok nóvember og byrja 1. des."

Fínt að menn finnir fyrir því að það séu breytingar
Þú talaðir aðeins um klefann. Seturðu eitthvað persónulegt handbragð á klefann þegar þú mætir?

„Smá handbragð, það voru breytingar, bæði á hópnum og teyminu. Við viljum að það sé eitthvað sýnilegt líka þegar menn koma til baka eftir frí. Það er oft þannig þegar menn eru búnir að vera lengi á sama stað, þá taka menn hlutum sem gefnum, þá stundum er gott að taka aðeins til hendinni og menn finni og sjái að það sé eitthvað nýtt í vændum."

Ljóst að það yrðu töluverðar breytingar
Það var auðvitað kynnt í lok júní að þú yrðir þjálfari liðsins eftir tímabilið. Hvað svona hefurðu séð hann þá varðandi Val og fótboltaþjálfun?

„Varðandi Val þá tókum við góða fundi á þessum tíma í kringum ráðninguna, hvernig þeir sáu framtíðina næstu ár fyrir sér og hvaða sýn ég hafði á þetta. Við fórum vel yfir hvernig þeir sáu bæði teymið og hópinn þróast. Það var ljóst að það yrðu töluverðar breytingar og við ræddum það hvernig hópurinn gæti litið út. Ég sagði hvað ég sæi fyrir mér að þyrfti að styrkja og annað."

„Svo hef ég verið að nota tímann fyrir sjálfan mig, ferðast víða um Skandinavíu, hitta mikið af klúbbum; sjá alls konar hluti, hitta fólk og taka fundi. Ég hef mest verið að byggja mig sjálfan upp og undirbúa sjálfan mig fyrir þetta spennandi starf sem fram undan er hjá Val."


Kæmi ferskur inn eftir tímabilið
Þú talar um að það hafa verið fundir á þessum tíma, í aðdraganda ráðningar og í kringum hana. Á þeim tíma, var aldrei rætt um þann möguleika að þú tækir strax við liðinu?

„Nei, það raunverulega var strax frá upphafi lagt þannig upp að það lægi fyrir að yrðu breytingar á meistaraflokki karla; breytingar á, á starfsfólki og eins og leit út fyrir og hefur raungerst, þá hafa töluverðar breytingar á leikmannahópnum einnig átt sér stað."

„Það var lagt upp þannig að þeir sáu mig sem spennandi kost til að taka við þessu og þannig að það væri best að fá mig ferskan inn, með hreint blað; nýjan hóp, nýtt lið og nýtt upphaf einhvern veginn frekar en að vera koma inn í það sem var áður og ég var svo sem sammála með það."


Kitlaði að fá að vera á hliðarlínunni
Hugsaðir þú þegar það var spírall niður á við, hvort þú ættir ekki að taka við þessu strax, burtséð frá því hvort stjórn Vals vildi það eða ekki?

„Eðlilega voru auðvitað leikir þar sem hugsunin kom upp, ekki bara þegar það gekk illa, ég fékk mikinn fiðring líka í kringum Evrópukeppnina, Chris gerði auðvitað frábærlega í Evrópu og sló út góðkunningja mína í Zrinjski Mostar sem mér hefur ekki tekist ennþá. Þá var mikill fiðringur að fara í Evrópuferðir og vera að stýra þessu. Auðvitað saknaði maður þess að þjálfa, en aldrei á þeim skala að það hefði einhvern tímann komið til tals að breyta planinu sem hafði verið gert í júní."

Segir sig sjálft að Valur vill vera ofar
Liðið endar í áttunda sæti. Skynjar þú það sterkt að Valur á að vera ofar og ætlar sér að vera ofar?

„Já, að sjálfsögðu, Valur hefur auðvitað verið í langan tíma eitt af bestu liðum landsins og verið þarna á tímanum sem ég var í Breiðabliki, þá voru þetta Víkingur og Breiðablik að skiptast á titlum en Valur var alltaf þarna líka. Ég hef ekki reiknað það en í heildarstigafjölda var Valur örugglega ekkert langt frá þessum tveimur liðum og auðvitað var áttunda sæti töluvert frá markmiðum liðsins."

„Að sama skapi var búið að gefa út að það yrðu breytingar á ýmsum hlutum. Ég held að bæði Hemmi og Chris hafi komið inn á erfiðum, reynt að gera sitt besta og þetta er niðurstaðan. Það er okkar núna að byggja upp nýtt lið, byrja þetta svolítið aftur frá grunni. Auðvitað vill Valur vera ofar en 8. sæti og það segir sig alveg sjálft."


Vill að Valur spili annan fótbolta
Sérðu fram á svona gjörbreytingu í áherslum sem að þú munt koma með inn eða sérðu mikið í leik liðsins í síðustu mánuði sem þú vilt byggja ofan á?

„Það er kannski erfitt að segja. Það eru nokkrir leikmenn sem voru í stóru hlutverki í sumar sem ljóst er að verða ekki áfram í liðinu. Við höfum fengið inn til okkar leikmenn og endursamið við leikmenn sem við teljum að henti mjög vel í þann leikstíl sem ég vil spila, sem er orkumikill fótbolti sem byggir á miklum dugnaði. Ég er alls ekki að segja að leikmenn sem voru séu það ekki, en það er svolítið nýtt upphaf hvað varðar leikstíl. Ég vil kannski tala minna um það sem var áður en já, ég vil að Valur spili annan fótbolta en í sumar."

Munur að vera með sex lið sem vilja gera vel
Komandi í Val hafandi verið í Breiðabliki, hvernig er aðstaðan ef þú berð þetta saman?

„Að mörgu leyti svipað. Þetta er frábær æfingaaðstaða, flott gym, fínasti klefi. Liðið æfir á aðalvellinum við toppaðstæður sem er mjög sambærilegt Breiðabliki. Munurinn er sá að hérna ertu með þrjár íþróttagreinar, handbolta, fótbolta og körfu sem vilja gera mjög vel bæði karla- og kvennamegin og með flotta yngri flokka."

„Maður finnur að það er mikið líf í húsinu á daginn og samgangur með þjálfara og annað sem mér finnst mjög heillandi og eitthvað sem ég hlakka til að koma mér inn í líka."

„Það hefur verið þannig síðustu ár hafa verið þetta sex meistaraflokkar að berjast uppi og fótboltaliðin hjá Val eru undantekning núna. Félagið hefur gert gríðarlega vel og verið mjög metnaðarfullt í sinni nálgun á meistaraflokkana. Það er bara frábært að vera í þannig umhverfi þar sem menn eru með metnað í að vinna saman, ýta á hvorn annan og rífa hvorn annan upp."


Þeir þekkja þá ekki Oliver eða Halla
Varðandi teymið, þú færð með þér Oliver, Halla og Gumma. Á pappír sér maður ekki sterka rödd á móti þér og ég hef orðið var við umræðu að þú sért með já-menn í kringum þig. Hvernig sérð þú þetta?

„Þeir sem segja það þekkja þá ekki Oliver eða Halla Björns vel. Ég hef minnstar áhyggjur af því."

„Oliver er kannski ekki reynslumikill þjálfari þannig lagað enda bara nýhættur að spila en hefur þjálfað töluvert í yngri flokkum þegar hann var leikmaður. Hann var með 2. flokkinn hjá Breiðablik og líka Augnablik núna, sem er dýrmætt. Hann er hefur gríðarlega miklar skoðanir og mun hafa sterka rödd. Haraldur Björnsson verður seint sakaður um að hafa ekki skoðanir. Þetta eru menn með mjög miklar skoðanir og það er ekki síst ástæðan fyrir að ég tek þá inn. Ég hef ekki áhyggjur af því og líst vel á teymið."

„Svo kemur Gummi inn með okkur núna, hann var aðeins að þjálfa í yngri flokkum Fram og var svo aðstoðarþjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í lok sumars. Það hefur farið frábært orð af honum og ég kynntist honum auðvitað aðeins þegar hann kom til okkar í Breiðablik. Ég er hrikalega ánægður með þetta teymi, það fer mjög gott orð af Kirian styrktarþjálfara, við höfum átt góð samtöl. Svo er Baldvin Orri leikgreinandi, öflugur og uppalinn Valsari. Þetta er virkilega öflugt teymi sem ég er ánægður með. Jú, auðvitað þurfa menn að skora hver á annan og hafa skoðanir, en að sama skapi þurfa menn að hafa sömu gildi að leiðarljósi í sinni nálgun í þjálfun."


Þarf að styrkja ákveðnar leikstöður
Hvernig sérðu næstu vikur fyrir þér og ertu með einhverjar áherslur varðandi leikmannamál? Sérðu strax núna að þú viljir fá inn menn í ákveðnar stöður?

„Já, ég hef alveg látið vita af því og við höfum farið í þá vinnu að í ákveðnum leikstöðum þurfum við að styrkja okkur. Annars staðar erum við með meiri breidd og hópurinn er þrátt fyrir að nokkuð margir leikmenn hafi yfirgefið frá því að ég skrifaði undir, þá er hópurinn fjölmennur og mikið af spennandi leikmönnum. Sama í yngri flokka starfinu, það eru að koma flottir strákar þar upp."

„Það er ekkert stress, við bara byrjum að æfa með hópinn og ef það eru komnir einhverjir leikmenn fyrir þann tíma þá er það besta mál, en ef ekki þá vinnum við það ekki í neinu stressi. Finnum réttu púslin, aðrir fá tækifæri og vonandi grípa þau."

„Við erum aðallega spenntir fyrir því að vinna með hópnum eins og hann lítur út í dag."


Gríðarlega vanmetinn leikmaður
Hólmar er hættur og Markus Nakkim er með lausan samning. Ertu að skoða hafsent frekar en annað?

„Við tókum auðvitað inn Sigurð Arnar frá ÍBV sem er fyrir mér ofboðslega stórt, gríðarlega vanmetinn leikmaður sem hefur gert vel. Hann hefur spilað vel fyrir sitt félag ÍBV, að sama skapi var hann einn allra besti leikmaðurinn í bandaríska háskólaboltanum í toppliði og var á radar hjá mörgum MLS liðum. Það var gríðarlega mikilvægt að ná honum inn. Koma hans breikkar og styrkir hafsentastöðuna. Við erum með þónokkra leikmenn sem geta spilað hafsent á þessu leveli."

„Við erum alveg að skoða í þá línu en að sama skapi erum við mjög opnir fyrir því að nota þá línu sem fyrir eru hjá yfir félaginu,"
segir Dóri en Valur hefur verið orðaður við Hans Viktor Guðmundsson hjá KA og Viktor Örn Margeirsson hjá Breiðabliki.

Langtímaverkefni að búa til fleiri leikmenn
Umræðan um Val síðustu ár og lengra aftur í tímann er lágt hlutfall uppalinna leikmanna. Hvernig sérð þú þá stöðu og sérðu fyrir þér eitthvað plan til að hækka prósentuna eitthvað?

,Algjörlega. Þegar talað er um prósentu, þá er það auðvitað þannig að á síðasta tímabili, ef mér skjátlast ekki, þá voru þrír uppaldir Valsarar að spila fótbolta í efstu tveimur deildunum á Íslandi. Einn var 17 ára (Mattías Kjeld), einn 42 ára (Birkir Már Sævarsson) og einn 29 ára (Aron Elí Sævarsson). Enginn af þeim er leikmaður Vals í dag."

„Það sem við erum að horfa í eru okkar ungu strákar í dag, tvítugir og yngri. Við ætlum að gera allt sem við getum til að hækka þetta hlutfall en það er auðvitað stórt gat þarna á milli stórt gat þar sem vantar leikmenn, því miður, og við getum ekki breytt því í dag. En við getum sannarlega breytt því neðar með því að byggja upp gott starf í yngri flokkum, koma efnilegum strákum nær okkur og inn á völlinn. Það er langtímaverkefni að búa til fleiri leikmenn og fleiri Valsara, þannig að eftir einhver ár verði klárir í að spila fyrir Val og þá hækkar þetta hlutfall."

„Við getum hækkað mínútufjölda hjá ungum og ætlum okkur að gera það. Það er stundum sett sama sem merki milli þess að margir uppaldir séu að spila og margir ungir, en víðast hvar eru þetta 22-34 ára strákar sem uppaldir eru hjá félaginu sem taka þessar mínútur. Það er farið frá okkur, en við getum búið til nýja kynslóð, unga Valsara sem geta tekið þessar mínútur á næstu árum. Það er markmiðið."


Flóknara að nota GoalUnit á Íslandi
Tól sem mikið hefur verið talað í kringum Val, GoalUnit, hvaða skoðun hefur þú á því og verður áframhald á notkun þess hjá Val?

„Besta deildin er með samning við GoalUnit þar sem Valur hefur þá aðgang að þeirra gögnum eins og aðrir. Ég held að GoalUnit sé að mörgu leyti gott tól til að styðjast við, bara svipað og aðrar gagnaveitur sem við kaupum aðgang að og nýtum í leikgreiningar; scouting og annað. GoalUnit er sænskt fyrirtæki sem hefur gert frábæra hluti í Svíþjóð og hentar mjög vel á skandinavískan markað. Hentar mjög vel liðum í efstu deildum í Noregi og Svíþjóð t.d. sem geta sótt leikmenn víða."

„Íslenska umhverfið er aðeins flóknara og mín persónulega skoðun er að það sé erfitt að spegla það algjörlega til Íslands. En það er margt mjög gott sem GoalUnit gerir, fínar hugmyndir og margt sem hægt er að nota. En að lokum þarf það alltaf að vera félagið, stjórn og þjálfari sem tekur lokaákvörðun með leikmenn."


Búnir að fá inn fjóra og endursemja við tvo
Varðandi leikmannamál, er eitthvað sem er nálægt því að vera frágengið sem stuðningsmenn geta verið spenntir að fylgjast með?

„Það er svo sem ekkert að gerast akkúrat núna. Það eru komnir ungir strákar í Tómasi Bjarka og Tuma Fannari. Tómas Bjarki hefur verið fyrirliði Njarðvíkur síðustu ár og frábær leikmaður með gott hugarfar. Tuma þekki ég vel, leikmaður sem getur leyst margar stöður, tæknilega virkilega góður."

„Svo er kominn ungur strákur úr Breiðabliki, Kristófer Logi, sem er mjög spennandi 17 ára leikmaður."

„Eins og ég nefndi var stórt fyrir okkur að fá Sigurð Arnar. Við framlengdum við Frederik sem var mjög stórt og ég hlakka mikið til að vinna með honum. Við framlengdum líka við Albin Skoglund sem ég var mjög ánægður með. Hann er leikmaður sem hefur staðið sig vel og ég trúi að muni henta okkur mjög vel; ofboðslega duglegur, kraftmikill leikmaður."

„Eins og ég sagði áðan erum við að skoða aðrar stöður og við munum bæta við okkur leikmönnum, það er ljóst. Við erum ekkert að ana að neinu, munum velja vel. Við erum bæði að horfa í reynslumikla leikmenn og líka í óslípaða demanta sem við höfum trú á að geti tekið okkur lengra."


Hætti að fjalla um Bestu deildina eftir ráðninguna
Þú varst sérfræðingur í Stúkunni framan af tímabili, svo hættir þú fljótlega í því eftir að þú varst tilkynntur sem verðandi þjálfari Vals.

Var hugsunin þannig að þetta myndi ekki ganga upp að halda áfram í sérfræðingahlutverkinu?

„Við ræddum þetta alveg, ætluðum að reyna keyra á þetta. Svo opnar sumarglugginn og þá er maður að heyra um allskyns mögulegar breytingar á liðum, leikmenn sem eru ósáttir, mögulega á förum og svo framvegis. Þá var ég kominn með ef svo má segja innherjaupplýsingar um samningsmál og stöðu liða og leikmanna í deildinni sem kannski á einhvern hátt var óþægilegt að fara með í sjónvarpið."

„Ég færði mig yfir í enska boltann, Sunnudagsmessuna, og það var fínt að prófa það líka."


Tryggvi er einn besti leikmaður deildarinnar
Um þetta leyti er Tryggvi Hrafn Haraldsson að taka sína ákvörðun. Fundaðir þú einhvern tímann einn með honum?

„Nei, við áttum bara fínt spjall í síma. Ég hringdi í hann og þá var ljóst að hann var á leiðinni upp á Skaga. Skiljanlega var hann spenntur að fara heim á Skagann eftir tímabilið, þannig það voru aldrei neinar viðræður okkar á milli eða neitt slíkt."

„Ég skil ÍA vel, hann er einn besti leikmaður deildarinnar og hefði verið mjög skemmtilegt að vinna með honum. Ég óska honum alls hins besta upp á Skaga."


Ætlar að búa til orkumikið lið sem mun ná árangri
Hvað er það sem þú ætlar að gera með Val? Hvað er markmiðið með liðið?

„Skammtímamarkmiðið er að setja saman leikmannahóp sem er drifinn áfram af metnaði og dugnaði, búa til mjög orkumikið lið sem hefur mikla hlaupagetu, getur varist hátt uppi á vellinum og er tilbúið að opna leikina upp að ákveðnu marki."

Langtímamarkmiðið er auðvitað að búa til lið sem keppir á toppnum, berst um Evrópu og titla, þar sem Valur vill vera."

„Ég vil að við séum að mæla árangur, fyrir utan hið augljósa sem eru stig og mörk, að við mælum breytur sem skilgreina að liðið sé að ná árangri. Við viljum vera með áþreifanlegar breytur að liðið sé að taka framförum, umfram það sem taflan sýnir, í hvora áttina sem það er."

„Ég vil búa til kúltúr, orkumikið lið, sem mun að lokum ná árangri."


Ætlar ekki að kópera Breiðabliksliðið
Þeir sem munu horfa á Val munu ósjálfrátt bera það saman við liðið og leikstíllinn undir þinni stjórn hjá Breiðabliki. Á að búast við því sama, eða ertu að fara gera eitthvað annað?

„Ég ætla ekkert að kópera Breiðabliksliðið og reyna að innblanda það beint inn í Val. Ein af þeim ástæðum sem ég er ráðinn er af því að Breiðabliksliðið seinni partinn 2024 og svo 2025 spilaði gríðarlega orkumikinn fótbolta; pressaði mjög hátt og gerði vel á köflum. Það er sú tegund af fótbolta sem ég aðhyllist, sú tegund sem skilgreinir bestu lið í Evrópu. Þetta verður ekki sama og í Breiðabliki, ég er með aðra leikmenn og kannski aðrar þarfir í kringum lykilmenn sem ég mun alltaf aðlaga liðið að, en það er krafa að liðið mitt sé orkumikið og með mikla hlaupagetu," segir Dóri að lokum.
Dóri mættur á Hlíðarenda.

Dóri mættur á Hlíðarenda.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjá Val eru meistaraflokkar karla og kvenna í stóru boltaíþróttunum þremur sem ætla sér að keppa á toppum.

Hjá Val eru meistaraflokkar karla og kvenna í stóru boltaíþróttunum þremur sem ætla sér að keppa á toppum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver Sigurjónsson verður aðstoðarþjálfari. Hann lék undir stjórn Dóra hjá Breiðabliki.

Oliver Sigurjónsson verður aðstoðarþjálfari. Hann lék undir stjórn Dóra hjá Breiðabliki.

Canon

Mynd: Valur

Halli Björns er markmannsþjálfari Vals, hann var í teymi Dóra hjá Breiðabliki.

Halli Björns er markmannsþjálfari Vals, hann var í teymi Dóra hjá Breiðabliki.

Canon

Mynd: Valur

Guðmundur Magnússon kemur inn í þjálfarateymið sem 'transition' þjálfari, á að hjálpa ungum leikmönnum að koma inn í meistaraflokkinn.

Guðmundur Magnússon kemur inn í þjálfarateymið sem 'transition' þjálfari, á að hjálpa ungum leikmönnum að koma inn í meistaraflokkinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vonbrigðatímabil hjá Val, 8. sætið niðurstaðan.

Vonbrigðatímabil hjá Val, 8. sætið niðurstaðan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var ráðinn í júní en tók við á dögunum.

Var ráðinn í júní en tók við á dögunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Chris Brazell þjálfaði Val seinni hluta tímabilsins.

Chris Brazell þjálfaði Val seinni hluta tímabilsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við tókum auðvitað inn Sigurð Arnar frá ÍBV sem er fyrir mér ofboðslega stórt, gríðarlega vanmetinn leikmaður

Við tókum auðvitað inn Sigurð Arnar frá ÍBV sem er fyrir mér ofboðslega stórt, gríðarlega vanmetinn leikmaður

Canon

Mynd: Valur

Tryggvi Hrafn var besti leikmaður Vals á tímabilinu en samdi við ÍA í sumar og er farinn frá Val.

Tryggvi Hrafn var besti leikmaður Vals á tímabilinu en samdi við ÍA í sumar og er farinn frá Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frederik Schram er einn allra besti markmaður landsins, var frábær í einvíginu gegn Zrinjski, og framlengdi við Val í haust.

Frederik Schram er einn allra besti markmaður landsins, var frábær í einvíginu gegn Zrinjski, og framlengdi við Val í haust.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Albin Skoglund skrifaði undir nýjan samning við Val.

Albin Skoglund skrifaði undir nýjan samning við Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dóri vann með Tuma Fannari hjá Breiðabliki.

Dóri vann með Tuma Fannari hjá Breiðabliki.

Canon

Mynd: Valur

Undir stjórn Chris Brazell sló Valur út Zrinjski Mostar í forkeppni Sambandsdeildarinnar sem var ansi öflugt.

Undir stjórn Chris Brazell sló Valur út Zrinjski Mostar í forkeppni Sambandsdeildarinnar sem var ansi öflugt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er hrikalega ánægður með þetta teymi

Ég er hrikalega ánægður með þetta teymi

Canon

Mynd: Valur

Ég ætla ekkert að kópera Breiðabliksliðið og reyna að innblanda það beint inn í Val.

Ég ætla ekkert að kópera Breiðabliksliðið og reyna að innblanda það beint inn í Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristófer Logi er fæddur árið 2009 og kemur frá Breiðabliki.

Kristófer Logi er fæddur árið 2009 og kemur frá Breiðabliki.

Canon

Mynd: Valur

Við erum aðallega spenntir fyrir því að vinna með hópnum eins og hann lítur út í dag

Við erum aðallega spenntir fyrir því að vinna með hópnum eins og hann lítur út í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dóri var í Stúkunni á Sýn framan af tímabili en steig svo til hliðar eftir að hann var ráðinn til Vals.

Dóri var í Stúkunni á Sýn framan af tímabili en steig svo til hliðar eftir að hann var ráðinn til Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta er frábær æfingaaðstaða, flott gym, fínasti klefi. Liðið æfir á aðalvellinum við toppaðstæður

Þetta er frábær æfingaaðstaða, flott gym, fínasti klefi. Liðið æfir á aðalvellinum við toppaðstæður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er krafa að liðið mitt sé orkumikið og með mikla hlaupagetu

Það er krafa að liðið mitt sé orkumikið og með mikla hlaupagetu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Segir sig sjálft að Valur stefnir ofar.

Segir sig sjálft að Valur stefnir ofar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Hrafn og Hólmar Örn verða ekki áfram og þeir Markus Nakkim og Myles Velman eru með lausa samninga.

Tryggvi Hrafn og Hólmar Örn verða ekki áfram og þeir Markus Nakkim og Myles Velman eru með lausa samninga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru virkilega spennandi tímar framundan

Það eru virkilega spennandi tímar framundan

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.