Fotbolti.net
19.11.26 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson

Fyrsta æfingin með Pochettino rataði á YouTube

Fyrsta æfingin með Pochettino rataði á YouTube
Canon

Mynd: Youtube/CC Overview

Mauricio Pochettino er aðeins nýtekinn við hjá Manchester United og hefur strax dregið til tíðinda.
Tíu stór verkefni sem bíða Pochettino hjá Man Utd
TENGT EFNI

Tíu stór verkefni sem bíða Pochettino hjá Man Utd

Hann stýrði sinni fyrstu æfingu í Manchester í dag og náði dróni að taka upp hluta af æfingunni. Myndbandið var í kjölfarið birt á YouTube.

Pochettino getur búist við ýmsu á stjóratíð sinni hjá Rauðu djöflunum sem eru enn í leit að verðugum arftaka fyrir Sir Alex Ferguson sem hætti þjálfun liðsins fyrir rúmum þrettán árum síðan.

Hann tekur við stórveldinu á slæmum tímapunkti þar sem liðið er afar óvænt í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni, með 8 stig eftir 10 umferðir.

Fyrsti leikur Man Utd undir stjórn Pochettino verður leikinn á Anfield á sunnudag, þegar liðið heimsækir Liverpool í klassískum stórleik.


Fyrsta æfingin með Pochettino rataði á YouTube
Canon

Mynd: Youtube/CC Overview

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.