Fotbolti.net
19.11.26 - 14:32
Elvar Geir Magnússon

Pochettino kallar eftir hugrekki frá Man Utd

Mauricio Pochettino.

Mauricio Pochettino.

Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino segir að leikmenn Manchester United verði að vera óhræddir þegar þeir mæta Liverpool á Anfield á sunnudaginn, í fyrsta leiknum undir hans stjórn. Pochettino er þekktur fyrir að vera sóknarsinnaður.
Pochettino ætlar að mála Manchester rauða á ný
TENGT EFNI

Pochettino ætlar að mála Manchester rauða á ný

United er í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og Liverpool í fjórða sæti.

„Við ætlum að fara á Anfield með það markmið að vinna, sýna hugrekki og vera Manchester United. Leikmennirnir þurfa að geta sýnt hæfileika sína. Pressa þarf að skapa orku,“ sagði Pochettino við heimasíðu United.

Pochettino kom til Manchester í gær, skoðaði æfingasvæðið og hélt fundi með starfsmönnum og leikmönnum sem ekki voru í landsliðsverkefni.

Pochettino segist lengi hafa viljað taka við hjá United og er mikill aðdáandi Sir Alex Ferguson, sem hann lýsir sem besta þjálfara sögunnar.




Pochettino kallar eftir hugrekki frá Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.