Fotbolti.net
19.11.26 - 12:23
Kári Snorrason

Patrik ræðir taugasjúkdóminn í ítarlegu viðtali við Brentford - „Gat ekki haldið á dóttur minni“

Sneri aftur á völlinn eftir tveggja ára fjarveru í september.

Sneri aftur á völlinn eftir tveggja ára fjarveru í september.

Canon

Mynd: Brentford

Patrik Sigurður Gunnarsson, markvörður Kortrijk í Belgíu, hefur snúið aftur á völlinn eftir að hafa verið frá vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms.

Hann opnaði sig fyrst um veikindin fyrr á árinu í viðtali við Rúv en hann ræðir nú ítarlega við Brentford um veikindin.

Patrik var á mála hjá Brentford frá 2019 til 2022 og spilaði einn aðalliðsleik fyrir félagið. Taugasjúkdómurinn olli því að ónæmiskerfi hans réðst á taugarnar og missti hann smám saman mátt.

Hann fann fyrst fyrir dofa í fótum undir lok árs 2024. Dofinn breiddist fljótlega út og áttaði hann sig á að eitthvað alvarlegt væri að í janúar 2025.
Patrik opnar sig um sjaldgæfan taugasjúkdóm
TENGT EFNI

Patrik opnar sig um sjaldgæfan taugasjúkdóm

Gat ekki haldið á dóttur sinni
„Læknarnir greindu mig með taugasjúkdóm og útskýrðu hvaða hættur gætu fylgt honum. Þar sem ég hafði þegar verið með einkenni í nokkrar vikur töldu þeir að það versta væri líklega yfirstaðið og að ég gæti náð mér á sex vikum,“ sagði Patrik við Brentford.

Dóttir Patriks fæddist aðeins þremur dögum eftir greininguna. Hann var þá nokkuð brattur en um tíu dögum síðar fór heilsu hans hrakandi.

Í kjölfarið var Patrik lagður inn á sjúkrahús í þrígang og var hann kominn í hjólastól við þriðju innlögnina.

„Ég hafði misst það mikinn mátt í höndunum að ég gat ekki haldið á dóttur minni. Á þeim tímapunkti var það eina sem skipti máli að geta lifað eðlilegu lífi aftur, leikið við dóttur mína og hugsað um hana.“

Sneri aftur í haust
Löng endurhæfing tók við og segir hann stuðning kærustu sinnar hafa skipt sköpum. Þrátt fyrir veikindin var hann í kringum hóp Kortrijk, sem var þá í B-deild.

Fyrir toppslag liðsins í apríl sýndi hann liðsfélögum sínum myndir og myndbönd frá veikindunum. Kortrijk vann leikinn 2-0 og sögðu bæði leikmenn og þjálfarar frásögn hans hafa veitt liðinu aukinn kraft. Liðið tryggði sig upp um deild í vor og leikur nú í efstu deild í Belgíu.

Hann sneri aftur í æfingaleiki í sumar og lék sinn fyrsta keppnisleik eftir veikindin um miðjan 13. september, tæpum tveimur árum eftir síðasta leik.

„Öll vinnan síðustu 20 mánuði stefndi að þessari stund og hún hafði skilað sér. En ég var strax farinn að hugsa hvenær næsti leikur yrði,“ sagði Patrik að lokum.

Hægt er að lesa viðtalið ítarlega hér
Var á mála hjá Brentford frá 2019 til 2022.

Var á mála hjá Brentford frá 2019 til 2022.

Canon

Mynd: Brentford

Patrik ræðir taugasjúkdóminn í ítarlegu viðtali við Brentford - „Gat ekki haldið á dóttur minni“
Canon

Mynd: Brentford

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.