Fotbolti.net
19.11.26 - 16:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stefan Ljubicic á leið í Breiðablik

Stefan Ljubicic á leið í Breiðablik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn stæðilegi, Stefan Alexander Ljubicic, er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið í Breiðablik.

Hann er með lausan samning eftir að hafa skorað tólf mörk í 24 leikjum í Bestu deildinni með nýliðum Keflavíkur í sumar.

Stefan er fæddur 1999 og hefur verið orðaður við Breiðablik að undanförnu. Hann hefur einnig verið orðaður við Víking, FH og Stjörnuna.
Einn heitasti bitinn á markaðnum - „Veit að það er áhugi"
TENGT EFNI

Einn heitasti bitinn á markaðnum - „Veit að það er áhugi"

Stefan hefur á sínum ferli spilað með Keflavík, Grindavík, HK, KR á Íslandi og erlendis hefur hann verið á mála hjá Brighton og Riga. Hann lék þá á láni í neðri deildum Englands með Bognor Regis Town og Eastbourne Bourough.

Á liðnu tímabili var Breiðablik með Kristófer Inga Kristinsson, Arnar Bjarka Gunnleifsson (2010), Þór Andersen Willumsson (2009) og Þorleif Úlfarsson í fremstu stöðu. Arnar Bjarki var keyptur til Bröndby í Danmörku og Kristófer er með lausan samning.
Stefan Ljubicic á leið í Breiðablik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.