22.09.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tónaði niður balkanska tuðið - „Pabbi tók mig harkalega eftir það"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflvíkingurinn Stefan Alexander Ljubicic segist hafa hugsað sinn gang í sumar eftir að hafa tekið út leikbann vegna uppsafnaðra spjalda.
Spjöldin fékk hann fyrir tuð í dómurum og segir hann að faðir sinn hafi farið vandlega yfir málin með honum þegar hann þurfti að taka út leikbann vegna framkomu sinnar á vellinum.

TENGT EFNI
Einn heitasti bitinn á markaðnum - „Veit að það er áhugi"
Stefan var kominn með fjögur gul spjöld strax í júní og tók þá út leikbann. Hann hefur ekki fengið gult spjald síðan.
„Ég held þetta sé gamla góða balkanska tuðið. Að framherji sé að fá fjögur gul fyrir fjögur tuð er ekki í lagi. Pabbi tók mig harkalega eftir það, ég veit þetta er fáránlegt. Ég tuða alveg ennþá, en kannski aðeins minna," segir Stefan á léttu nótunum.
Faðir Stefans er Zoran Daníel Ljubicic sem lék með HK, ÍBV, Grindavík, Keflavík, Völsungi og Njarðvík hér á landi eftir að hafa spilað í Sarajevo í Bosníu.