Arnór Sigurðsson er í landsliðshópnum sem mætir Kanada og Haítí í æfingaleikjum í Mexíkó síðar í þessum mánuði. Arnór var síðast í landsliðinu í septemberglugganum 2024 en hann hefur glímt við mikil meiðsli undanfarin tvö ár.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson var spurður út í endurkomu Arnórs í landsliðið á blaðamannafundi á miðvikudaginn.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson var spurður út í endurkomu Arnórs í landsliðið á blaðamannafundi á miðvikudaginn.
„Hann er búinn að lenda í hræðilegum meiðslum síðustu eitt, tvö ár. Hann hefur ekki náð takti í sinn leik. Hann var einn af þessum leikmönnum sem ég var búinn að hlakka mjög til að fá inn í hópinn. Við munum öll eftir því á hvaða leveli hann var á þegar hann var að skora á Bernabeu,“ sagði Arnar og hélt áfram.
„Síðustu ár hafa ekki verið alveg eins og hann hafi óskað sér. En að sama skapi þá verður þú sterkari persóna fyrir vikið og sterkari karakter. Hann er núna reynslumikill leikmaður og að spila fyrir sterkt lið Malmö.
Í okkar huga var engin spurning að taka hann inn og fá tækifærið að skoða hann þegar hann var orðinn heill. Sjá hvernig hann kemur inn í hópinn, því fótboltalegu hæfileikarnir eru til staðar. Síðan sjáum við hvernig dínamíkin verður, það verður spennandi að fá hann í hópinn.“
Athugasemdir

