Fotbolti.net
20.11.26 - 18:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tom Brady vill kaupa hlut í Chelsea

Tom Brady vill kaupa hlut í Chelsea
Canon

Mynd: EPA

NFL-goðsögnin Tom Brady seldi hlut sinn í Birmingham City fyrr í þessum mánuði en hann er sagður vera í viðræðum um að kaupa lítinn hlut í Chelsea.

Brady vann Ofurskálina sjö sinnum og er sá sigursælasti í sögunni. Hann á í góðu sambandi við Behdad Eghbali, en sjóðurinn hans, Clearlake Capital, á 86,5% hlut í Chelsea eftir að Todd Boehly og Mark Walter seldu hluti sína í september.
Tom Brady slítur tengslum við Birmingham
TENGT EFNI

Tom Brady slítur tengslum við Birmingham

Hann gerðist minnihlutaeigandi í Birmingham í ágúst 2023 þegar hann hóf viðskiptasamband við eigendur enska félagsins. Brady var meðal annars í ráðgjafahlutverki hjá Birmingham.

Brady á hlut í NFL-liðinu Las Vegas Raiders.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.