Fotbolti.net
21.01.25 - 19:06
Elvar Geir Magnússon

Byrjunarlið Liverpool og Lille: Hákon byrjar á Anfield

Hákon byrjar á Anfield.

Hákon byrjar á Anfield.

Canon

Mynd: Getty Images

Arne Slot, stjóri Liverpool, vonast til þess að tryggja sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Hákoni Arnari Haraldssyni og félögum í Lille í kvöld.

Liverpool hefur unnið alla sex leiki sína í Meistaradeildinni og er á toppnum. Lille er með 13 stig og er í áttunda sæti, síðasta sætinu sem gefur beinan þátttökurétt í 16-liða úrslitum.

Liðin sem enda í sætum 9-24 munu fara í umspil um að komast í 16-liða úrslitin.
Tottenham hefur fylgst með Hákoni síðan í júní
TENGT EFNI

Tottenham hefur fylgst með Hákoni síðan í júní

Liverpool gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá 2-0 sigrinum gegn Brentford. Darwin Nunez er verðlaunaður með byrjunarliðssæti eftir að hafa skorað tvö mörk í uppbótartíma á laugardaginn.

Conor Bradley, Jarell Quansah og Curtis Jones koma einnig inn. Trent Alexander-Arnold, Ibrahima Konate, Alexis Mac Allister og Cody Gakpo fara á bekkinn.

Hákon Arnar Haraldsson skoraði í 2-1 sigri Lille gegn Nice á föstudaginn og er í byrjunarliðinu áfram. Angel Gomes er á meðal varamanna.

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Bradley, Quansah, Van Dijk, Tsimikas, Gravenberch, Jones, Szoboszlai, Salah, Nunez, Diaz.

(Varamenn: Kelleher, Jaros, Endo, Konate, Mac Allister, Chiesa, Gakpo, Elliott, Robertson, Alexander-Arnold, Danns, Morton)

Byrjunarlið Lille: Chevalier, Mandi, Diakite, Alexsandro, Gudmundsson, Andre, Mukaku, Cabella, Hákon Haraldsson, Bakker, David.

(Varamenn: Mannone, Caillard, Gomes, Sahraoui, Meunier, Bayo, Mbappe, Ismaily, Bouaddi, Cossier)

Meistaradeildin í kvöld
20:00 Atletico Madrid - Leverkusen
20:00 Benfica - Barcelona
20:00 Bologna - Dortmund
20:00 Club Brugge - Juventus
20:00 Rauða stjarnan - PSV
20:00 Liverpool - Lille
20:00 Slovan Bratislava - Stuttgart


Nunez er verðlaunaður.

Nunez er verðlaunaður.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1AEK000
2Arsenal000
3Aston Villa000
4Atletico Madrid000
5Barcelona000
6Bayern000
7Betis000
8Bodö/Glimt000
9Dortmund000
10Club Brugge000
11Como000
12Fenerbahce000
13Feyenoord000
14Galatasaray000
15Inter000
16LASK Linz000
17Lens000
18Lille000
19Liverpool000
20Man City000
21Man Utd000
22Napoli000
23PSG000
24Porto000
25PSV000
26RB Leipzig000
27Real Madrid000
28Roma000
29Sabah FK000
30Shakhtar D000
31Slovan000
32Sparta Prag000
33Sporting000
34Stuttgart000
35Viking FK000
36Villarreal000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.