Fotbolti.net
21.02.20 - 21:42
Ívan Guðjón Baldursson

Æfingaleikur: KR gerði jafntefli við FC Cincinnati

Æfingaleikur: KR gerði jafntefli við FC Cincinnati
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>KR 3 - 3 FC Cincinnati</b>
1-0 Stefán Árni Geirsson ('12)
1-1 Kendall Watson ('18)
1-2 Jimmy McLaughlin ('25)
2-2 Óskar Örn Hauksson ('50)
2-3 Allan Cruz ('55)
3-3 Aron Bjarki Jósefsson ('85)
Íslandsmeistarar KR eru í æfingaferð í Bandaríkjunum og spiluðu æfingaleik við MLS-deildarliðið FC Cincinnati sem hafnaði í neðsta sæti deildarinnar í fyrra.

Hinn efnilegi Stefán Árni Geirsson, sem lék að láni hjá Leikni R. á síðustu leiktíð, skoraði fyrsta mark leiksins á tólftu mínútu.

Kendall Watson jafnaði og kom Jimmy McLaughlin Bandaríkjamönnum yfir. Staðan var 1-2 í hálfleik.

Óskar Örn Hauksson jafnaði í síðari hálfleik en Allan Cruz kom Cincinnati aftur yfir skömmu síðar.

Það var undir lok leiksins sem Aron Bjarki Jósefsson náði að jafna fyrir KR og tryggja gott jafntefli gegn atvinnumannaliði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.