Man Utd kaupir landsvæði fyrir fyrirhugaðan leikvang

Svona gæti nýr leikvangur litið út.

Mynd: Manchester United

Svona gæti nýr leikvangur litið út.

Mynd: Manchester United
Manchester United hefur keypt stórt landsvæði þar sem félagið áætlar að nýr leikvangur félagsins muni rísa. Það er staðsett um 350 metra frá Old Trafford en þar er núna Go-Kart braut.
United er að vinna að því að kaupa annað svæði þar við hliðina á og yrði þá komið með það pláss sem þarf fyrir nýja leikvanginn. Samkvæmt frétt Daily Mail telur félagið að ekki verði neitt vandamál að tryggja sér það svæði.

TENGT EFNI
Áform um nýjan Old Trafford hljóta stuðning stjórnvalda
„Þetta er góð framþróun í átt að því að félagið eignist nýtt heimsklassa heimili," segir Collette Roche, framkvæmdastjóri þróunarmála varðandi nýjan leikvang.
Áform Manchester United snúast um að byggja nýjan 100 þúsund manna leikvang. Enskir fjölmiðlar tala um verkefnið sem 'Wembley norðursins' en Old Trafford er orðinn barn síns tíma.
Áform Manchester United snúast um að byggja nýjan 100 þúsund manna leikvang. Enskir fjölmiðlar tala um verkefnið sem 'Wembley norðursins' en Old Trafford er orðinn barn síns tíma.