Ætlar að æfa með 2. flokki í fríinu - „Á ennþá nokkur markmið eftir"

Ég held að hver einasti leikmaður myndi segja það sama

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kemur boltanum í netið en þetta mark fékk reyndar ekki að standa.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta er búið að vera algjörlega geggjað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eigum við ekki að segja að markmiðið sé 15 mörk, væru þá ekki allir sáttir?

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mér finnst þetta frí á deildinni fáránlegt

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Gummi Steinars er goðsögn í Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Patrik raðaði inn mörkum 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ég held að hver einasti leikmaður myndi segja það sama

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefan verður 27 ára í næsta mánuði og er ekki búinn að ná öllum markmiðum sínum á tímabilinu. Fótbolti.net ræddi við framherjann stæðilega í dag.

Að eiga sitt besta tímabil á ferlinum - „Bara 26 ára og nóg eftir"
„Ég var að senda á þjálfarana í 2. flokknum og fer vonandi á æfingu í kvöld. Ég nenni ekki að fara eitthvað einn út að hlaupa, fínt að halda sér í standi í bolta."
„Næsti æfing með meistaraflokknum er næsta mánudag. Mér finnst þetta frí á deildinni fáránlegt, held að enginn leikmaður sé hrifinn af þessu. Tökum sem dæmi KA-menn, vinna Þór og fá momentum, en svo er þriggja vikna frí. Það er erfitt að byggja ofan á það. Ég held að hver einasti leikmaður myndi segja það sama," segir Stefan.
Hlé er á Bestu deildinni vegna landsleikja. Íslenska landsliðið spilar fjóra leiki í Þjóðadeild C á næstu tveimur vikum.
Nánast búinn að tvöfalda fyrsta markmiðið
Viltu gefa út hver þín markmið voru fyrir tímabilið?
„Fyrsta markmið var að bæta metið mitt frá í HK, það voru sex mörk og ég er búinn að ná því og næstum búinn að tvöfalda það. Eigum við ekki að segja að markmiðið sé 15 mörk, væru þá ekki allir sáttir?"
„Ég er loksins í geggjuðu standi, engin meiðsli, orðinn aðeins eldri og með góða reynslu. Ég veit hvað ég get og finnst þegar ég spila vel alveg geta farið upp í 20 mörk. Byrjum á því að ná 15, þá verð ég sáttur. Svo að vera í topp sex eins og núna, það er draumur, það er bara eins og titill fyrir okkur."
Veit hvernig á að hugsa um sig
Er eitthvað sérstakt sem þú hefur gert til að halda þér heilum?
„Ég æfi eins og andskotinn, svo er það bara það hefðbundna; reyni að sofa vel, borða, hugsa um sjálfan mig, fer í nudd og hlusta á líkamann. Ég hef verið hjá félögum úti, veit hvernig stóru liðin eru að gera þetta og hvernig á að gera þetta. Þetta er líka að mestu hausinn, hafa trú á sjálfum sér. Ef ég er ekki að standa mig á kafla þá er bara að halda áfram og ná trúnni aftur. Loksins er ég alveg meiðslalaus. Það skemmtilegasta sem ég geri er að spila alla leiki og allar mínútur."
Skorað í tíu leikjum
Stefan hefur skorað mörkin ellefu í tíu leikjum. Ein tvenna komin í sumar og hún kom strax í fyrsta leik. Horfir þú í það?
„Það er gott að vera búinn að skora í mörgum leikjum. En það að skora tvennur hér og þar gefur mikið, hækkar töluna svo hratt upp, þetta hefur því tekið tíma að ná 11 mörkum. Ég þarf bara að halda áfram að skora, sama hvenær það gerist í leikjunum. En ég er mjög ánægður með að hafa náð að skora í mörgum leikjum."
Vita hvernig þeir vilja gera hlutina
Keflavík mætti með vel mótað lið inn í tímabilið og hefur náð að halda stöðugleika í gegnum mótið.
„Við fengum erlendu leikmennina snemma og margir í hópnum búnir að vera lengi saman. Við vitum hvernig við viljum hafa hlutina og svo koma nýir menn inn og aðlagast því. Allir náðu að gera það. Alpha (Conteh) kom inn með sprengju og bæði Davíð og Breki líka. Þetta eru mismunandi karakterar, hiti á æfingum og svona, en það er bara hollt. Við sýndum það á æfingum að við smellum allir saman. Við höfum misst leikmenn út en þá hafa aðrir komið inn og staðið sig. Það hefur aldrei verið panikk, höfum tapað leik en svo svarað með sigri. Þetta er búið að vera algjörlega geggjað."
Fimm mörkum frá Gumma Steinars
Frá því að Guðmundur Steinarsson skoraði 16 mörk í efstu deild 2008 hefur einungis Patrik Johannesen skorað meira en Stefan á einu tímabili. Færeyingurinn skoraði tólf mörk 2022.
„Ég var ekki búinn að tékka með Patrik, en ég tékkaði á Gumma Steinars. Ég hef alveg skoðað einhverjar tölur og hugsað að það væri gaman að verða markahæstur á einu tímabili, það væri ákveðin yfirlýsing. En mörkin koma bara þegar þau koma. Ég vil tikka inn fleiri mörkum."
Ætla sér upp töfluna
Þrír leikir eru eftir, þið eruð ekkert hættir eða hvað?
„Nei, alls ekki. Það breytir kannski ekki miklu fyrir okkur hvort það sé 6. sætið eða 4. sætið. En ég held að Keflavík hafi ekki verið ofar en í 6. sæti síðan 2008. Að vera fyrir ofan 6. sæti væri skemmtilegt og geggjaður árangur. Það er ennþá séns, það er Breiðablik næst og við erum fjórum stigum á eftir þeim. Við stefnum á að koma okkur upp töfluna," segir Stefan að lokum.

Kemur boltanum í netið en þetta mark fékk reyndar ekki að standa.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta er búið að vera algjörlega geggjað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eigum við ekki að segja að markmiðið sé 15 mörk, væru þá ekki allir sáttir?

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mér finnst þetta frí á deildinni fáránlegt

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Gummi Steinars er goðsögn í Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Patrik raðaði inn mörkum 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
