23.08.26 - 21:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Að eiga sitt besta tímabil á ferlinum - „Bara 26 ára og nóg eftir"
Auglýsing

Stefan Ljubicic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í leik í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefan Ljubicic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er fallegt fyrir okkur. Við slökktum aðeins á okkur í seinni hálfleik. Það er fínt ef við getum unnið svona líka," sagði Stefan Ljubicic, sóknarmaður Keflavíkur, eftir 1-0 sigur á ÍBV í Bestu deildinni í kvöld.
Stefan skoraði sigurmarkið í kvöld með hörkuskalla.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 0 ÍBV
„Ég sé að Eiður með hann og hann er með svakalega löpp. Boltinn fer aðeins fyrst í varnarmanninn og dettur fullkomlega fyrir mig. Þetta er flottur skalli og framherjamark myndi ég segja."
„Ég er stór og stæðilegur, þarf að vera góður að skalla."
Þetta er níunda mark Stefan í Bestu deildinni í sumar og um er að ræða hans besta tímabil í meistaraflokki, allavega þegar kemur að mörkum.
„Ég er sáttur en ég er samt búinn að klikka á nokkrum færum. Þetta er fjórði heimaleikurinn í röð þar sem ég skora. Að ná að hjálpa liðinu að vinna leiki er það eina sem skiptir máli," segir Stefan sem líður alltaf best heima.
Stefan er bara 26 ára gamall og því er alveg möguleiki að hann fari aftur í atvinnumennsku á einhverjum tímapunkti. Hann var áður í akademíu Brighton á Englandi, hjá Riga á Lettlandi og Skövde í Svíþjóð.
„Ég hef verið úti, komið aftur heim, farið aftur út og komið aftur heim. Ég er núna í 'fokk it mode' og er að keyra á þetta, ég veit hvað ég get í fótbolta og aðrir vita það líka. Loksins er ég líka meiðslafrír, það er kannski stærsti punkturinn í þessu. Ég hef alltaf verið meiddur. Ég hef hugsað um sjálfan mig og er með sjálfstraust."
„Ég er bara 26 ára og það er nóg eftir. Ég vil vera í topp sex hérna og svo sjáum við hvað gerist," sagði Stefan.
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan þar sem Stefan ræðir meira um frábæran árangur Keflavíkur í sumar.